Næsti kafli rokksögu Íslands skrifaður á Húsavík um helgina
Blaðamaður Húsavík.com sat ásamt konu sinni heima á pallinum á föstudagskvöld, skömmu fyrir miðnætti. Skjálfandaflói var spegilsléttur, fuglarnir sungu í trjánum og kyrrðin var nær algjör. En skyndilega var þögnin rofin. Kunnuglegt gítarriff ómaði yfir Höfðann og þéttur trommusláttur fylgdi fast á eftir. Það var ekki um að villast. …
