Nú um helgina eru 270 skólastjórnendur víðs vegar að af landinu staddir á Húsavík á árlegri námstefnu Skólastjórafélags Íslands. Aðal fyrirlestur námsstefnunnar að þessu sinni flytur Dr. Brad Johnson, en hann hefur þrjátíu ára reynslu af menntamálum, sem kennari, skólastjórnandi og leiðtogi í innleiðingu nýrrar hugsunar í menntamálum. Brad heimsótti Könnnunarsafnið og Eurovision-sýninguna í gær og Örlygur Hnefill tók hann tali.
Við röltum um Eurovision-sýninguna og Könnunarsafnið. Hér eru næg tilefni til samræðna, hvort sem áhuginn liggur í kvikmyndum, sögu eða fólkinu sem þorir að leggja út í hið óþekkta. Brad hefur áhuga á þessu öllu. En fyrst langar mig að vita hvernig leið hans lá hingað. „Ég var að tala á stórri ráðstefnu fyrir stjórnendur í menntamálum í Kanada, uLead, sem er haldin í Banff í Alberta. Þangað koma fulltrúar frá Íslandi og þeir heyrðu mig tala í fyrra. Í kjölfarið buðu þeir mér hingað,“ segir Brad. „Þau sögðu að þau myndu gjarnan vilja fá mig til Íslands. Ég sagði að ég myndi gjarnan vilja koma.“
Honum leist sérstaklega vel á þegar hann frétti að ráðstefnan yrði á Norðurlandi. Hann telur staðarvalið líka hafa haft ákveðinn tilgang. „Ég held að hugmyndin hafi verið að komast í minni bæ, þar sem fólk gæti virkilega átt tíma saman án þess að annað væri stöðugt að trufla. Þannig varð Húsavík fyrir valinu.“
Þegar áfangastaðurinn lá fyrir kom svo óvæntur undirbúningur til sögunnar. Einn frændi hans benti honum á Eurovision-kvikmyndina. „Ég hafði aldrei séð hana. Hann sagði: Hún fjallar um Húsavík, þú verður að horfa á hana. Svo varð ég auðvitað alveg háður henni og horfði á hana svona tíu eða tuttugu sinnum.“
Á rölti um sýninguna er því engin þörf á að útskýra allt frá grunni. Brad þekkir kvikmyndina og segist meira að segja geta sungið Húsavíkurlagið. „En þið viljið ekki heyra mig syngja það,“ bætir hann við. „En það er alveg frábært lag og mjög grípandi.“
Fallegra þegar maður er kominn hingað
Ferðin til Íslands gekk þó ekki alveg eins greiðlega og vonir stóðu til. Veðrið setti strik í reikninginn og flugi hans frá New York seinkaði um átta klukkustundir. Hann komst loks til Húsavíkur klukkan tíu kvöldið áður en við hittumst.
Þrátt fyrir stutta viðdvöl er hann þegar farinn að mynda sér skoðun á bænum. „Maður sér myndir á netinu, af kirkjunni og öllu hinu, og það er fallegt. En myndirnar ná ekki að sýna hvernig það er að vera hér í eigin persónu.“
Hann segist bæði njóta ráðstefnunnar og þess að kynnast staðnum. „Ég er virkilega ánægður með að vera kominn hingað. Hér er yndislegt fólk og ég nýt þess að vera í bænum.“

Traust gefur fólki svigrúm
En hvað er það sem Brad vill að skólastjórnendurnir taki með sér heim frá Húsavík?
Hann nefnir hugtak sem er kjarninn í starfi hans: relational leadership. Á íslensku mætti tala um forystu sem byggist á tengslum og trausti.
„Í mínum huga snýst forysta um sambönd. Um að byggja upp tengsl við fólkið sem þú leiðir. Þegar þú gerir það og skapar traust er fólk yfirleitt tilbúið að leggja meira á sig og gera betur.“
Þarna telur hann að stjórnendur missi stundum sjónar á því sem skiptir máli. Þeir geti verið svo uppteknir af því að tryggja að allt sé gert að þeir gefi fólkinu sínu of lítið svigrúm til að láta til sín taka.
„Því meira sjálfstæði sem þú veitir fólki og því meira sem þú leyfir því að gera, því meira getur það gert og því meiri ábyrgð getur það tekið. Það gerir starf þitt sem leiðtoga í raun auðveldara.“
Þetta kann að hljóma einfalt. Samt gengur það gegn þeirri hugmynd að góður stjórnandi þurfi alltaf að hafa hönd í bagga með hverju einasta verki.
„Við hugsum stundum um stjórnun þannig að við þurfum að tryggja að allir séu að gera allt sem þeir eiga að gera, með því að stýra hverju smáatriði. En það þreytir þig sjálfan og gerir aðra pirraða út í þig.“
Áhersla hans er því á að kynnast fólkinu, byggja upp traust og hjálpa því að njóta sín í starfi.
„Þegar þú gerir það verður menningin á vinnustaðnum betri fyrir alla.“
Reynslan úr skólastofunni
Brad þekkir skólastarfið frá fleiri en einni hlið. Hann var um áratug í kennslu áður en hann fór að sinna námskrárvinnu og stjórnun, meðal annars sem aðstoðarskólastjóri og skólastjóri. Eftir doktorspróf kenndi hann verðandi stjórnendum á framhaldsstigi háskóla.
Þessi reynsla liggur að baki bókum hans, sem fjalla meðal annars um starfsánægju kennara, samskipti og menningu skóla. Í Putting Teachers First er áherslan á hvernig stjórnendur geta stutt kennara sína og byggt upp góð tengsl við þá. Í bókinni Finding Your Leadership Edge, sem hann skrifaði með Jeremy Johnson, er viðfangsefnið jafnvægið milli ákveðni og umhyggju.
Hann notar líka sögur til að koma hugmyndum sínum á framfæri. Í Coffee With the Custodian læra skólastjóri og húsvörður um forystu í gegnum samskipti sín. Þótt viðfangsefnin séu ólík liggur sami þráður í gegnum þau: áhrif stjórnanda ráðast að verulegu leyti af því hvernig hann mætir fólkinu í kringum sig.
Leifur á leið að Goðafossi
Þegar við færum okkur frá Eurovision yfir að sögu landkönnunar kemur í ljós að Brad er mikill söguáhugamaður. Hann hafði þegar kynnt sér tengsl Íslands við undirbúning tunglferðanna og vissi að geimfarar hefðu æft hér.
„Ég vissi af þjálfuninni hjá NASA og hvernig hraunlandslagið hér var notað við undirbúning fyrir tunglið. En ég vissi ekki að þið ættuð þessa muni hér á safninu. Það var mjög áhugavert að sjá myndirnar og gripina.“
Við skoðum muni frá fjölskyldu Neils Armstrongs. Samtalið færist þannig frá fólki sem mótar daglegt skólastarf yfir að fólki sem tók þátt í einni þekktustu könnunarferð sögunnar.
Brad hefur þó líka augastað á íslenskri náttúru. Næsta dag hyggst hann heimsækja Goðafoss.
„Ég hef ekki haft mikinn tíma til að upplifa landið ennþá, en fegurðin er augljós. Það eru nokkrir staðir sem mig langar að sjá, sérstaklega fossarnir.“
Hann bætir við að hann eigi kannski meira sameiginlegt með Íslandi en ætla mætti.
„Ég sagði þeim í gamni að millinafnið mitt væri Leif, svo ég fyndi til einhverrar skyldleika við Ísland. Mamma segir meira að segja að þau viti ekki hvers vegna þau gáfu mér þetta nafn. En það varð nú samt fyrir valinu.“
Forysta við fossinn
Brad segir mér að hann sé einna spenntastur að sjá Goðafoss á morgun. Ég segi honum þá frá Þorgeiri Ljósvetningagoða og sögunni um að hann hafi kastað goðalíkneskjum sínum í Goðafoss eftir kristnitökuna. En einnig söguna af því hvernig kristnitakan fór fram á Þingvöllum, og leiðtogahæfni Þorgeirs. Það er ekki oft sem heil þjóð skiptir um trúarbrögð án þess að til átaka komi. Sennilega er það einsdæmi, og sýnir leiðtogahæfni Ljósvetningagoðans.
Í samtali við mann sem vinnur við að ræða forystu fær þessi gamla frásögn annan hljóm. Hún verður tilefni til að hugsa um ákvarðanir, breytingar og ábyrgð þeirra sem aðrir treysta til að vísa veginn. Það er mín tenging við samtalið okkar, enda getur saga landsins líka orðið spegill fyrir spurningar samtímans.

