270 skólastjórnendur heimsækja Húsavík næstu tvo daga

Það verður líf og fjör á Húsavík næstu tvo daga, en 270 skólastjórnendur víðs vegar að af landinu koma saman á árlegri námstefnu Skólastjórafélags Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem námstefnan er haldin á Húsavík og verður íþróttahöllin miðpunktur viðburðarins dagana 9. og 10. október.

Hjálmar Bogi Hafliðason, einn skipuleggjenda námstefnunnar, segir í samtali við Húsavík.com að fyrstu gestirnir hafi þegar komið til Húsavíkur í gær, en von sé á flestum þátttakendum í dag. Ljóst er að viðburðurinn mun setja svip sinn á bæjarlífið næstu tvo daga, enda um að ræða fjölmennan hóp sem sækir Húsavík heim utan hefðbundins ferðamannatíma.

Yfirskrift námstefnunnar í ár er Leiðtoginn í lykilhlutverki. Á dagskrá verða fyrirlestrar, vinnustofur og jafningjafræðsla þar sem skólastjórnendur miðla reynslu sinni og ræða áskoranir og tækifæri í skólastarfi.

Alþjóðlegur sérfræðingur í menntamálum meðal gesta

Aðalfyrirlesari námstefnunnar er dr. Brad Johnson, sem er meðal þekktra fyrirlesara á sviði menntamála og leiðtogafræða. Johnson hefur yfir þriggja áratuga reynslu sem kennari, skólastjóri og prófessor í menntastjórnun og hefur skrifað yfir 20 bækur um forystu og skólastarf.

Johnson sérhæfir sig í tengslamiðaðri forystu og leggur áherslu á mikilvægi trausts, mannlegra samskipta og jákvæðrar menningar innan skóla og stofnana. Hann mun bæði flytja erindi og stýra vinnustofum á föstudag og laugardag, en dagskrá föstudagsins endar á stórri árshátíð í íþróttahöllinni.