Sigur hjá Ádám lækni í lokaumferð skákmótsins í Debrecen

Ádám Gulyás, læknir á Sjúkrahúsinu á Húsavík og skákmaður í Skákfélaginu Goðanum, náði góðum árangri á skákmóti í Debrecen í Ungverjalandi sem lauk í gær.

Ádám tefldi í B-flokki mótsins og lauk keppni með sigri á Barnabas Jeremiah Agishe frá Nígeríu, sem er með 1599 stig, í sjöundu og síðustu umferð.

Alls fékk Ádám fimm vinninga af sjö mögulegum og hafnaði í 5. sæti. Árangurinn er sérstaklega góður í ljósi þess að honum var raðað sem 13. stigahæsta keppandanum í flokknum fyrir mótið.

Samkvæmt upplýsingum á vef Skákfélagsins Goðans má jafnframt búast við að Ádám hækki um 21 skákstig fyrir frammistöðu sína á mótinu.

Ádám hefur starfað sem læknir hjá HSN á Húsavík frá árinu 2018.