Framhaldsskólinn á Húsavík settur í fertugasta sinn

Framhaldsskólinn á Húsavík var settur í 40. sinn í dag, en skólinn fagnar jafnframt 40 ára afmæli á þessu skólaári. Halldór Jón Gíslason skólameistari sagði í samtali við Húsavík.com að 142 nemendur stundi nám við skólann nú á haustönn. Þar af eru 49 nýnemar sem hófu nám við skólann í dag. Að lokinni skólasetningu fengu nemendur yfirferð yfir námsefni og skipulag vetrarins í örtímum með kennurum sínum.

Halldór segir að stefnt sé að því að halda sérstaklega upp á 40 ára afmæli skólans með dagskrá á vorönn.