Greiðslubyrði nýrra húsnæðislána er enn þung í sögulegu samhengi, bæði þegar kemur að verðtryggðum og óverðtryggðum lánum. Greiðslur af óverðtryggðum íbúðalánum hafa þó orðið viðráðanlegri á síðustu árum samhliða lækkandi vöxtum og því að laun hafa hækkað meira en íbúðaverð. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttamaður fjallar um málið á vef RÚV í dag.
Fasteignamarkaðurinn var jafnframt kaldari á fyrri helmingi ársins en á sama tíma í fyrra. Færri kaupsamningum vegna íbúðarhúsnæðis hefur verið þinglýst og tekur nú lengri tíma að selja íbúðir en áður.

