Sveit Grant Thornton varð bikarmeistari Bridgesambands Íslands árið 2026 eftir æsispennandi sigur á liði InfoCapital í úrslitaleik sunnudaginn. Lokatölur voru 104–103 og réð því aðeins eitt stig úrslitum eftir um níu klukkustunda viðureign. Sigursveitina skipa Sigurbjörn Haraldsson, Magnús E. Magnússon, Gunnar B. Helgason, Guðmundur Halldór Halldórsson, Stefán Stefánsson og Helgi Sigurðsson.
Húsavík.com náði tali af Magnúsi og Guðmundi í gær og voru þeir að vonum ánægðir með sigurinn.
Viðureignin var sveiflukennd. Grant Thornton vann fyrstu lotuna 29–23 en InfoCapital náði forystunni með 34–17 sigri í annarri lotu. Grant Thornton svaraði með 38–19 sigri í þeirri þriðju og hafði því átta stiga forskot fyrir lokalotuna. Þar vann InfoCapital 27–20, en það dugði ekki til og Grant Thornton stóð uppi sem sigurvegari með minnsta mun.
Að sögn Húsvíkingsins Magnúsar hafa sveitirnar tvær verið þær bestu á landinu síðustu fimm ár. Sveit hans hafi þó oftast þurft að sætta sig við annað sætið og því hafi þessi sigur verið sérstaklega sætur.
„It would not have been possible without Húsavík’s greatest Picasso“
Magnús hrósaði jafnframt Guðmundi, málarameistara, með skemmtilegum hætti: „It would not have been possible without Húsavík’s greatest Picasso,“ sagði hann þegar blaðamaður hafði samband og vísaði þar til félaga síns, málarameistarans við spilaborðið.
29 ár frá fyrri bikarsigri
Guðmundur hefur einu sinni áður unnið bikarinn, fyrir heilum 29 árum.
„Gaman að vinna þennan titil aftur eftir ofurnauman sigur á erfiðum, sterkum andstæðingum,“ sagði Guðmundur þegar Húsavík.com náði tali af honum. Hann segir fyrri bikarsigurinn hafa vakið mikla athygli á sínum tíma.
„Hef unnið bikarinn einu sinni áður fyrir heilum 29 árum síðan, sem vakti mikla athygli þá sökum þess að okkar sveit var mjög óreynd en tókst þrátt fyrir það að sigra úrslitaleikinn gegn margreyndum meisturum.“

