Árangur, ábyrgð og framtíðarsýn í Norðurþingi

Það er bæði skynsamlegt og heiðarlegt að staldra við í lok kjörtímabils. Að líta yfir farinn veg og meta hvað hefur áunnist. Í daglegu amstri stjórnmálanna er auðvelt að gleyma hversu mikið hefur verið gert. Að líta til baka og sjá heildarmyndina, hvaða mál við höfum knúið fram, hvaða breytingar hafa átt sér stað og áhrif á fólk, fyrirtæki og samfélag.

Það er mikilvægt að læra af reynslunni; hvar eru tækifæri til bætingar og hvað gekk vel. Það er ekki sjálfgefið að kjörnir fulltrúar séu sáttir við eigið framlag í stjórnmálum. Umræðan getur verið hörð og er oft ósanngjörn. Upplýsingaóreiða er vaxandi áskorun og líklegt er að hún aukist enn frekar með meiri skautun, popúlisma og einföldun flókinna mála. Í slíku umhverfi skiptir enn meira máli að halda fókus og byggja umræðuna á staðreyndum og verkum.

Stór verkefni og skýr forgangsröðun

Á kjörtímabilinu var ráðist í einhverjar stærstu framkvæmdir seinni ára. Þar ber hæst uppbygging félagsmiðstöðvar og frístundaaðstöðu auk þess sem útboði á hjúkrunarheimili er lokið og framkvæmdir að hefjast. Síðastliðin ár hefur verið barátta að falla frá kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Ef við hefðum ekki unnið þá baráttu værum við skuldbundin um einn milljarð vegna framkvæmdarinnar.

Áhersla hefur verið lögð á að styrkja grunninnviði samfélagsins. Unnið hefur verið að orkuöflun, meðal annars með leit að heitu vatni og gerð skýrsla um áfallaþol samfélagsins í tengslum við náttúruhamfarir og aðrar ógnir.

Skipulag sveitarfélagsins hefur verið endurskoðað og uppfært. Þá hefur verið lögð rík áhersla á hagsmunagæslu svæðisins gagnvart ríkinu; í málum á borð við atvinnumál, byggðakvóta, samgöngur og öryggi.

Börn, ungmenni og fjölskyldur í forgangi

Áhersla á börn, ungmenni og fjölskyldur hefur verið leiðarljós á kjörtímabilinu.

Frístundastyrkir hafa verið hækkaðir verulega og ánægjulegt að sjá aukna nýtingu þeirra. Morgunmatur hefur verið innleiddur í grunnskólum og unnið markvisst að uppbyggingu leikvalla og skólalóða. Teknar hafa verið ákvarðanir um nýjan leikskóla á Húsavík og byggt við Öxarfjarðarskóla auk viðhalds við Raufarhafnarskóla.

Samstarf skóla og frístundastarfs hefur verið eflt og gerðir nýir samningar við íþróttafélögin Völsung og Þingeying þar sem samþættingin er nú hluti af samningum við félögin. Sumarfrístund barna er öflug og framundan er að tryggja enn betur jafnt aðgengi allra barna.

Atvinnulíf, nýsköpun og hafnir
Atvinnumál hafa verið í brennidepli um allt sveitarfélagið. Undirbúningur frekari uppbyggingar á iðnaðarsvæðinu Bakka hefur verið umfangsmikill. Nýsköpun hefur vaxið, meðal annars með uppbyggingu Mýsköpunar við Þeistareykjavirkjun þar sem Orkuveita Húsavíkur og Fjárfestingafélag Þingeyinga eru hluthafar, Kornþurrkun á Hrísmóum, fjölgun skemmtiferðaskipa, Hraðið á Stéttinni og áhersla á markaðs- og kynningarmál, sérstaklega tengd höfnum hefur skilað sér í auknum tækifærum.

Innviðir og daglegt líf

Á kjörtímabilinu hefur verið ráðist í fjölda framkvæmda sem snerta daglegt líf íbúa:

  • Uppbygging göngu- og hjólaleiða
  • Uppbygging leikvalla og skólalóða
  • Endurbætur á knattspyrnuvelli með nýju gervigrasi og stúku
  • Nýr körfuboltavöllur
  • Endurnýjun á gervigrasi á sparkvöllum við Borgarhólsskóla.
  • Endurbætur á vegi að Botnsvatni og uppbygging gönguleiðar umhverfis vatnið
  • Stigi niður á Skipaflúð
  • Uppbygging á Röndinni og gatnagerð á fleiri svæðum

Einnig hefur verið:

  • LED-væðing götulýsingar
  • Endurskoðun sorphirðu
  • Unnið að fjölmörgum deiliskipulögum
  • Veittir afslættir af lóðum bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði til að styðja við uppbyggingu
  • Ferðamannainnviðir hafa verið styrktir með uppbyggingu á hafnarsvæðum, flotbryggjum og þjónustuaðstöðu, auk framkvæmda við Suðurgarð.

Víða um sveitarfélagið hefur verið unnið að fjölbreyttum verkefnum:

  • Endurbætur á skólahúsnæði á Kópaskeri og Raufarhöfn.
  • Uppbygging á íþrótta- og útivistarsvæði við Reyðarárhnjúk.
  • Framkvæmdir við Kirkjutorg og tjaldsvæði á Húsavík.
  • Gatnagerð og stígar víða; í Þverholti, Reitnum, Höfða og á Kópaskeri.
  • Uppbygging aðstöðu fyrir íþróttir og tómstundir, þar á meðal píluaðstöðu og skotaðstöðu.
  • Verkefni tengd menningu, sögu og samfélagi, svo sem fornleifakönnun og uppbygging Öskjureits.

Ábyrg fjármál og samvinna

Áhersla hefur verið lögð á ábyrgð og aga í fjármálum sveitarfélagsins, sem endurspeglast í rekstri þess undanfarin ár. Samvinna innan sveitarstjórnar hefur góð þó stundum hafi umræðan utan hennar tekið meira rými en raunveruleg vinna gefur tilefni til. Sú vinna fer fram í samtali, samvinnu og lausnamiðaðri nálgun.

Heildarmyndin

Við höfum farið í gegnum umfangsmiklar breytingar og skilað raunverulegum árangri. Það er ekki aðeins magn verkefna sem skiptir máli heldur einnig breiddin og jafnvægið. Innviðir hafa verið settir í forgang. Börn, ungmenni og fjölskyldur hafa fengið aukna athygli. Atvinnulífið hefur verið styrkt og framtíðarsýnin er skýr. Stjórnsýsla og fjármál hafa verið rekin af ábyrgð og markviss hagsmunagæsla hefur verið stunduð út á við.

Erfið og stundum óvinsæl verkefni hafa mætt okkur, oft með togstreitu í umræðunni. Samfélagsmiðlar hafa stundum tekið fókus frá raunverulegri vinnu en hún hefur haldið áfram.

Að lokum

Stefnan hefur verið skýr. Framkvæmdirnar eru raunverulegar. Áhrifin hafa náð til samfélagsins alls. Þegar við lítum yfir þetta tímabil sjáum við ekki bara verkefnalista heldur samfélag sem hefur styrkst, vaxið og tekið skref fram á við. Það gerðist ekki af sjálfu sér. Það gerðist vegna þess að við ákváðum að iðka samvinnu, halda fókus og gefast ekki upp. Tækifærin eru handan við hornið sé rétt haldið á spilunum.

Eiður Pétursson
Helena Eydís Ingólfsdóttir
Hjálmar Bogi Hafliðason
Kristinn Jóhann Lund
Soffía Gísladóttir