Henning Þór Aðalmundsson hefur verið ráðinn í starf slökkviliðsstjóra Norðurþings. Henning er löggiltur slökkviliðsmaður og hefur starfað við slökkvilið í rúm tuttugu ár, þar af í fullu starfi frá árinu 2017. Hann hefur jafnframt gegnt starfi varaslökkviliðsstjóra hjá slökkviliði Norðurþings í um átta ár og verið settur slökkviliðsstjóri í tæpt ár. Einnig hefur hann lokið námi sem eldvarnaeftirlitsmaður og hefur starfað við eldvarnaeftirlit, úttektir og forvarnarstarf innan sveitarfélagsins.
,,Ég er afar stoltur og þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt með ráðningu í starf slökkviliðsstjóra Norðurþings og hlakka til áframhaldandi samstarfs við starfsfólk og íbúa sveitarfélagsins“ segir Henning.
Henning er búsettur á Húsavík, giftur Berglindi Rut Magnúsdóttur leikskólakennara og á þrjár dætur og eina afastelpu.
Mynd: Skjáskot úr fréttum RÚV 28. janúar 2026

