Kosningakappræður í beinni útsendingu á Húsavík.com á laugardagsmorgun

Húsavík.com og Castor Miðlun standa fyrir kosningakappræðum í beinni útsendingu um helgina og býðst gestum að koma í myndver og fylgjast með. Gestum býðst jafnframt að beina spurningum til framboðanna. Útsendingin verður á laugardagsmorguninn 2. maí og hefst kl. 10.30 og eru opnar öllum sem hafa áhuga. 40 sæti eru í myndveri en einnig verður hægt að fylgjast með á skjáum í tveimur hliðarsölum.