Ný stjórn Krabbameinsfélags Suður-Þingeyinga vill auka sýnileika og stuðning

Aðalfundur Krabbameinsfélags Suður-Þingeyinga var haldinn í Bjarnahúsi 7. apríl síðastliðinn þar sem ný stjórn var kjörin og markmið félagsins áréttuð.

Framundan er aukin áhersla á að efla starfsemi félagsins, gera hana sýnilegri og bæta upplýsingagjöf og stuðning við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Hér að neðan má lesa fréttatilkynningu frá félaginu:

Aðalfundur Krabbameinsfélags Suður Þingeyinga var haldinn í Bjarnahúsi þriðjudaginn 7. apríl 2026.

Ný stjórn var kosin og er Ásgerður Arnardóttir nýr formaður félagsins, auk hennar sitja Gunnhildur Gunnsteinsdóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir, Berglind Ólafsdóttir og Guðrún Kristinsdóttir í stjórninni. Einnig voru þau Berglind Júlíusdóttir og Pétur Guðni Pétursson kosin í varastjórn. Við þökkum fráfarandi stjórn fyrir þeirra góða framlag undanfarin ár.

Ný lög voru samþykkt en gömlu lögin voru frá árinu 1968 en þá var stofnfundur félagsins haldinn að Breiðumýri.

Verkefni nýrrar stjórnar er að gera félagið virkara, sýnilegra og veita skjólstæðingum upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Innan félagsins starfar Lóan stuðningshópur sem stofnaður var á sumardaginn fyrsta árið 2025. Við hittumst hálfsmánaðarlega og fáum okkur kaffi og styðjum og styrkjum hvort annað. Greinilega mikil þörf á þessum samverustundum miðað við hversu góð mætingin hefur verið.

Allar fréttir af starfi okkar er hægt að finna inn á heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands en þar er linkur inn á fésbókarsíðu Lóunnar og Krabbameinsfélagsins Suður Þingeyinga.

Þeir sem vilja gerast félagar Krabbameinsfélags Suður Þingeyinga geta sent póst inn á netfang félagsins sudur.thingeyinga@krabb.is og óskað efir að gerast félagar en árgjaldið er 2500 kr.

Þeir sem dvelja á Sjúkrahóteli við Landspítalann eða öðrum gististöðum vegna meðferðar eða heimsóknar til læknis vegna krabbameins geta fengið fulla endurgreiðslu fyrir sig og fylgdarmann. Skila þarf kvittun til gjaldkera félagsins sem er Gunnhildur Gunnsteinsdóttir í Sparisjóðinum á Húsavík.

Dætur Helga Héðinssonar færðu Krabbameinsfélagi Suður Þingeyinga veglega gjöf sem er afrakstur markaða sem haldnir voru í Skarðaborg, var það ósk þeirra að gjöfin væri notuð í þágu barna. Stjórnin hefur ákveðið að láta nýtt frísundarheimili fá veglega peningagjöf til kaupa á spilum, leikföngum og því sem nýtist til leiks og þroska fyrir börn og ungmenni. Ákvörðunin var tekin í samráði við þær systur.

Sparisjóður Suður Þingeyinga færði félaginu eina milljón króna á aðalfundi sínum nú í apríl og þökkum við sparisjóðnum innilega fyrir veglega gjöf.
Við hvetjum fólk til þess að vera virkt og nýta sér félagið og starfsemi Lóunnar.

Kærar kveðjur,
Ásgerður og Guðrún