Framkvæmdir við starfsmannahúsnæði leikskólans Grænuvalla að Iðavöllum 8 ganga samkvæmt áætlun og er gert ráð fyrir að húsnæðið verði tekið aftur í notkun í lok maí eða byrjun júní. Þetta staðfestir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir leikskólastjóri í samtali við Húsavík.com, en frá því í nóvember hefur starfsemi skólans verið skert eftir að mygla greindist í húsnæðinu og starfsmannaaðstaða var flutt tímabundið inn í sal leikskólans.
> Sjá einnig: Grænuvellir: Víðtæk áhrif á leikskólastarf en tvær leiðir til skoðunar
„Það hefur tekist að láta hlutina ganga upp en það verður að segjast að það hefur alveg reynt á,“ segir Sigríður Valdís. Hún bætir við að áhrifin hafi verið víðtæk og snerti alla sem koma að starfseminni. „Það kemur berlega í ljós að allir finna fyrir þessu, starfsfólk, börn og foreldrar.“
Vonast eftir betri aðstöðu í sumar
Sigríður Valdís segir foreldra hafi sýnt aðstæðum skilning, en á sama tíma komi fram í niðurstöðum Skólapúlsins að aðstöðuleysið hafi áhrif á upplifun þeirra. Þá bendir hún einnig á að leikskólalóðin sé orðin slitin og lítið spennandi.
Að sögn Sigríðar ríkir bjartsýni um að ástandið batni verulega á næstu mánuðum. „Við munum fagna sól og sumri og bættri aðstöðu fyrir okkur öll,“ segir hún.


