Söfnuðu 845 þúsund krónum fyrir leikskólann með pizzabakstri
Foreldrar við leikskólann Grænuvelli á Húsavík tóku sig nýverið til og söfnuðu alls 845.162 krónum til styrktar leikskólanum með glæsilegu framtaki þar sem bakaðar voru pizzur í Pizzakofanum. Fjárhæðin verður að sögn leikskólastjóra nýtt til kaupa á nýju leiktæki fyrir sandkassann á suðurlóð leikskólans. Að sögn Sigríðar Valdísar Sæbjörnsdóttur, …
