Foreldrar við leikskólann Grænuvelli á Húsavík tóku sig nýverið til og söfnuðu alls 845.162 krónum til styrktar leikskólanum með glæsilegu framtaki þar sem bakaðar voru pizzur í Pizzakofanum. Fjárhæðin verður að sögn leikskólastjóra nýtt til kaupa á nýju leiktæki fyrir sandkassann á suðurlóð leikskólans.
Að sögn Sigríðar Valdísar Sæbjörnsdóttur, leikskólastjóra Grænuvalla, hafði Hrannar Rafn Jónasson samband við hana í júní og óskaði eftir leyfi til að nota merki leikskólans í söfnuninni. Hún segist hafa komið algjörlega af fjöllum þegar hann kynnti hugmyndina.
„Ég spurði hann hvers vegna hann væri að standa í þessu. Hann svaraði því að hann og Elín Ragnarsdóttir, konan hans, ættu barn í leikskólanum og langaði að gera þetta fyrir börnin og skólann,“ segir Sigríður. Hrannar hafði þá þegar rætt við Jón Ásþór í Pizzakofanum sem bauð þeim afnot af húsnæðinu á meðan staðurinn var lokaður.
Sigga Valdís segist sjálf hafa keypt pizzu báða dagana sem söfnunin fór fram og lýsir frábærri stemningu.
„Það var ótrúlegt að sjá Hrannar, Elínu og fjölskyldu þeirra og vini á fullu við pizzagerð. Það var greinilega brjálað að gera og góður andi í hópnum.“
Fjármunirnir verða notaðir til að kaupa nýtt leiktæki í sandkassann á suðurlóðinni. Gert er ráð fyrir að valin verði tvö til þrjú tæki og að eldri börn leikskólans fái síðan að kjósa um hvaða tæki verði fyrir valinu.
„Við erum að sjálfsögðu mjög þakklát fyrir þetta frábæra framtak,“ segir Sigríður Valdís.

