Íþróttafólk Völsungs var heiðrað við hátíðlega athöfn í gær, en viðburðurinn hefur verið haldinn með þessu sniði frá árinu 2015 og var þetta því í ellefta sinn sem félagið veitir slík verðlaun.
Að þessu sinni bárust tilnefningar frá þremur deildum félagsins og alls voru sex aðilar í kjöri til íþróttafólks Völsungs. Það er Íslandsbanki á Húsavík sem hefur stutt við viðburðinn frá upphafi með því að leggja til verðlaunin.
Blakfólkið Sigrún Marta Jónsdóttir og Þórarinn Örn Jónsson voru kjörin Íþróttafólk Völsungs 2025. Í máli Jónasar Halldórs Friðrikssonar framkvæmdastjóra Völsungs kom fram að íþróttastarf innan Völsungs sé ein af lykilstoðum í öflugu samfélagi á Húsavík, þar sem starfsemi félagsins nái til allra aldurshópa, allt frá börnum til eldri borgara. Einnig lagði hann áherslu á mikilvægi sjálfboðaliða, en íþróttastarf hér á landi byggir að stórum hluta á ólaunuðu framlagi sjálfboðaliða.
Hvatningarverðlaun í knattspyrnu kvenna:
Guðný Helga Geirsdóttir
Hvatningarverðlaun í knattspyrnu kvenna hlýtur Guðný Helga Geirsdóttir. Guðný er hinn fullkomni liðsfélagi og leiðtogi. Hún gerir alltaf það sem þarf fyrir liðið og stendur sig frábærlega innan sem utan vallar. Guðný á svo sannarlega framtíðina fyrir sér á sviði knattspyrnunnar.
Hvatningarverðlaun í knattspyrnu karla:
Hallgrímur Fannar Hallsson
Hvatningarverðlaun í knattspyrnu karla hlýtur Hallgrímur Fannar Hallsson. Hallgrímur er fjölhæfur knattspyrnumaður sem getur spilað allar stöður bæði í vörn og miðju. Fyrir Hallgrími kemur liðið alltaf fyrst, hann er samviskusamur og er virkilega vel liðinn af samherjum sínum. Hallgrímur er duglegur að æfa sig aukalega og það er ekki spurning að hann er framtíðarleikmaður Völsungs.
Hvatningarverðlaun í blaki
Freyr Völundur
Freyr Völundur mætir alltaf á æfingar tilbúinn að leggja sig fram og kemur með sína jákvæðu nærveru inn í hópinn. Hann er frábært fordæmi um að sameina einbeitingu og gleði, og hann hvetur samherja sína með metnaðarfullri og jákvæðri nálgun.
Það sem stendur sérstaklega upp úr hjá Frey er hversu óhræddur hann er við nýjar áskoranir og er tilbúinn að vaxa með verkefninu. Það hefur verið einstaktlega gaman að fá hann inn í hópinn og vonandi fáum við áfram að fylgjast með honum vaxa og dafna á blakvellinum.
Hvatningarverðlaun í blaki
Inga Bergdís
Inga Bergdís fær hvatningarverðlaun í blaki að þessu sinni.
Hún hefur sýnt frábæran áhuga og eldmóð, mætir alltaf á æfingar með jákvætt viðhorf og góðan anda og er skemmtilegur og hvetjandi leiðtogi í U12 hópnum.
Inga leggur sig alltaf fram á vellinum og hefur alla burði til að ná langt í blaki. Þjálfarar hafa einnig séð leikni hennar og sjálfstraust vaxa jafnt og þétt yfir árið. Það verður spennandi að fylgjast með henni á þessum vettvangi í framtíðinni.
Bocciamaður ársins
Einar Baldvinsson
Einar Baldvinsson er bocciamaður ársins þar sem hann náði góður árangri á árinu. Komst á pall á einu móti og hefur verið jákvæður og hvetjandi við aðra iðkenndur..
Bocciakona ársins
Valdís Birna Daníelsdóttir
Valdís Birna Daníelsdóttir er Bocciakona ársins þar sem hún hefur mætt vel og sýnt mestar framfarir. Hún hefur einnig verið hvetjandi og sýnt Boccianu mikinn áhuga. Þjálfarar Valdísar hafa verið mjög ánægð með hana og tekið eftir miklum framförum í spilamennsku Valdísar..
Knattspyrnumaður Völsungs
Jakob Héðinn Róbertsson
Jakob Héðinn Róbertsson er tilnefndur sem knattspyrnumaður Völsungs árið 2025. Jakob Héðinn, líkt og megnið af karlaliði Völsungs, þeytti frumraun sína í Lengjudeildinni þetta sumarið og óhætt er að segja hann hafi staðið sig með prýði. Jakob gerði 10 mörk í 22 leikjum og ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti. Jakob gerði í tvígang þrennu auk þess sem hann gerði 3 mörk í Mjólkurbikarnum. Jakob var kosinn besti leikmaður Völsungs árið 2025 af samherjum á lokahófi síðastliðið haust áður en hann var keypur af Bestu Deildar liði KA. .
Knattspyrnukona Völsungs
Halla Bríet Kristjánsdóttir
Halla Bríet Kristjánsdóttir er tilnefnd sem knattspyrnukona Völsungs árið 2025. Halla átti hörkusumar í toppbaráttuliði Völsungs þar sem hún gerði 17 mörk og lagði auk þess upp nokkur. Halla er afar skeinuhættur leikmaður sem hefur tekið miklum framförum og hræddi alla varnarmenn andstæðinga sína þetta sumarið. Halla var kosin besti leikmaður Völsungs árið 2025 á lokahófi og gekk til liðs við Bestu Deildar lið Þór/KA í haust.
Blakmaður Völsungs
Þórarinn Örn Jónsson
Þórarinn eða Tóti, stóð sig mjög vel á sínu fyrsta tímabili með Völsung/Eflingu. Hann kom til Húsavíkur eftir að hafa spilað með Odense Volleyball í Danmörku í nokkur ár. Þar spilaði hann aðallega stöðu frelsingja en hjá Völsung/Eflingu tók hann að sér hlutverk kant-smassara og leysti hlutverk það með sóma. Gæði hans í móttöku nýttist liðinu einnig mjög vel og reynsla hans og leiðtogahæfni leyndi sér ekki bæði innan vallar sem utan hjá okkar unga liði. Þá er Tóti afar hress og skemmtilegur og smitar liðsfélaga sína af stemningu á jákvæðni sem er góður kostur í liðsíþrótt.
Eftir tímabilið tók Tóti við þjálfun liðsins sem spilandi þjálfari og hefur lagt mikið á sig til að standa sig í því hlutverki í vetur. Hann hefur staðið sig vel í nýju hlutverki og sýnt að hann getur miðlað sinni reynslu til ungra leikmanna og verið góð fyrirmynd.
Tóti átti líka fína leiki með íslenska landsliðinu sem tók þátt í Silver league síðasta sumar.
Blakkona Völsungs
Sigrún Marta Jónsdóttir
Sigrún Marta átti frábært tímabil með Völsung á síðustu leiktíð. Liðið fór alla leið í úrslit Íslandsmótsins og var það ekki síst fyrir spilamennsku Sigrúnar sem sýndi og sannaði að hún er einn allra besti frelsingi deildarinnar og landsins.
Góð spilamennska Sigrúnar í deildinni skilaði henni sæti í landsliði Íslands þar sem hún hélt áfram að blómstra í Silver-league síðsta sumar. Íslenska liðið, sem hafði aldrei unnið leik í Silver league áður, gerði sér lítið fyrir og sigraði Georgíu, Færeyjar og Luxemborg og enduðu í 6. Sæti sem er besti árangur liðsins frá upphafi. Þar lék Sigrún Marta lykilhlutverk og stóð sig frábærlega.
Sigrún skipti síðan yfir í HK fyrir tímabilið í haust og hefur haldið áfram að spila vel og er einn besti frelsinginn í deildinni.
Íþróttafólk Völsungs 2025
Íþróttamaður Völsungs 2025
Þórarinn Örn Jónsson
Íþróttakona Völsungs 2025
Sigrún Marta Jónsdóttir

Ljósmyndir: Jóna Björg Pálmadóttir





















