Húsavík með lægstan heildarorkukostnað á Norðurlandi eystra

Byggðastofnun hefur birt nýja skýrslu um samanburð á orkukostnaði heimila árið 2025 og var greint frá henni á vef Norðurþings í gær. Í skýrslunni er miðað við sömu viðmiðunareign á 92 byggðakjörnum landsins, einbýlishús sem er 140 fermetrar að grunnfleti og 350 rúmmetrar. Reiknaður er saman kostnaður vegna almennrar raforkunotkunar og húshitunar samkvæmt gjaldskrám 1. september.

Samkvæmt skýrslunni er húshitunarkostnaður viðmiðunareignar á Raufarhöfn 265 þúsund krónur. Þar er um beina rafhitun að ræða og kemur fram að verð hafi lækkað um 23,2 prósent árið 2021 en síðan hækkað aftur um 16,4 prósent árið 2024. Á Kópaskeri er húshitunarkostnaðurinn 252 þúsund krónur, en á Húsavík er hann 120 þúsund krónur hjá Orkuveitu Húsavíkur og hefur lækkað um 14,3 prósent frá árinu 2014.

Þegar raforku- og húshitunarkostnaður er tekinn saman reynist heildarorkukostnaður viðmiðunareignar 403 þúsund krónur á Raufarhöfn og 390 þúsund krónur á Kópaskeri. Í skýrslunni segir að á Raufarhöfn hafi heildarkostnaður lækkað um 22,1 prósent á árunum 2018 til 2022, en sú lækkun sé nú að mestu gengin til baka eftir 17,2 prósenta hækkun árið 2025. Á Húsavík er heildarorkukostnaðurinn hins vegar 258 þúsund krónur og þar með sá lægsti á Norðurlandi eystra.

Í inngangi skýrslunnar kemur fram að árlegir útreikningar af þessu tagi liggi nú fyrir allt aftur til ársins 2014. Skýrslan var unnin fyrir Byggðastofnun af Umhverfis- og orkustofnun.