Foreldrafélög Framhaldsskólans á Húsavík og Borgarhólsskóla standa fyrir opnum fyrirlestri á morgun, fimmtudaginn 26. mars, þar sem fjallað verður um streitu og seiglu í daglegu lífi.
Fyrirlesturinn heldur Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, sem hefur mikla reynslu af heilsueflingu, forvörnum og kennslu. Hún er aðjúnkt við Læknadeild Háskóla Íslands, gestakennari við HR og situr í Lýðheilsuráði Læknafélags Íslands.
Í tilkynningu frá foreldrafélögunum segir að um sé að ræða hvetjandi erindi á mannamáli þar sem farið verður yfir bæði fræðilega og hagnýta þætti tengda streitu og leiðir til að efla seiglu. Áhersla verður lögð á hvernig hægt sé að nýta streitu á jákvæðan hátt og styrkja andlega líðan í síbreytilegu samfélagi. Viðburðurinn er opinn öllum foreldrum á Húsavíkur og nærsveitum.
Ljósmynd: Rafnar Orri Gunnarsson

