Starfsmannahúsnæði Grænuvalla aftur í notkun í byrjun sumars: „Hefur alveg reynt á“

Framkvæmdir við starfsmannahúsnæði leikskólans Grænuvalla að Iðavöllum 8 ganga samkvæmt áætlun og er gert ráð fyrir að húsnæðið verði tekið aftur í notkun í lok maí eða byrjun júní. Þetta staðfestir Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir leikskólastjóri í samtali við Húsavík.com, en frá því í nóvember hefur starfsemi skólans verið skert …

Grænuvellir: Víðtæk áhrif á leikskólastarf en tvær leiðir til skoðunar

Talsverðar breytingar hafa orðið á starfsemi leikskólans Grænuvalla á Húsavík frá því í nóvember, eftir að mygla greindist í starfsmannahúsi skólans við Iðavelli 8. Í kjölfarið var starfsmannaaðstaða flutt tímabundið inn í sal leikskólans, sem hefur haft veruleg áhrif á hefðbundið starf, sérstaklega á viðburði og sameiginlegt nám í …