Orkuveita Húsavíkur selur hlut sinn í Sjóböðunum

Stjórn Orkuveitu Húsavíkur hefur samþykkt að selja 13,79% eignarhlut félagsins í Sjóböðunum fyrir 70,5 milljónir króna. Ákvörðunin var tekin á stjórnarfundi fyrirtækisins í vikunni eftir að tilboð barst frá Kjálkanesi.

Stjórn OH samþykkti í nóvember 2025 að hefja könnun á mögulegri sölu á hlut félagsins í Sjóböðum. Tilboð Kjálkaness var tekið til formlegrar afgreiðslu á síðasta stjórnarfundi og var samþykkt með fyrirvara um forkaupsrétt annarra hluthafa.

Stjórn Sjóbaða og aðrir hluthafar félagsins fara nú yfir tilboðið og mun skýrast á næstunni hvort þeir hyggist nýta forkaupsrétt sinn.

OH hefur verið hluthafi í Sjóböðunum frá upphafi.