Framhaldsskólanum á Húsavík verður slitið við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju á morgun, laugardaginn 23. maí, en athöfnin hefst klukkan 13.00.
„Það eru 38 nemar að útskrifast á morgun, þetta er einn af stærstu hópunum sem hafa útskrifast úr FSH. Þetta er því búinn að vera annasamur vetur og mikil tilhlökkun til morgundagsins,“ segir Arna Ýr Arnarsdóttir, fjármála- og áfangastjóri skólans, í samtali við Húsavík.com.
Við athöfnina verða brautskráðir nýstúdentar af náttúruvísindabraut, félags- og hugvísindabraut og opinni stúdentsbraut. Þá verða einnig útskrifaðir nemendur af starfsbraut, heilsunuddbraut og sjúkraliðabrú.
Á vef skólans sendir skólameistarinn, Halldór Jón Gíslason, nemendum, fjölskyldum þeirra og velunnurum kveðju í tilefni dagsins:
„Verið hjartanlega velkomin að gleðjast með okkur á þessum fallega og mikilvæga hátíðisdegi í starfi skólans. Að lokinni athöfn er opið hús og kaffiboð í Framhaldsskólanum á Húsavík.“

