Stjórn hafnasjóðs segir ákvarðanir hafa verið teknar af meiri heift en skynsemi

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings fundaði í morgun vegna kröfu Gentle Giants á hendur sjóðnum sem nemur um 90,8 milljónum króna. Krafan byggir á dómi Landsréttar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hafnasjóður hefði ekki haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var. Hæstiréttur hafnaði …

Undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu rafeldsneytisframleiðslu

Norðurþing og E-Valor hafa undirritað viljayfirlýsingu um að kanna möguleika á uppbyggingu sjálfbærrar rafeldsneytisframleiðslu á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Verkefnið er fyrirhugað í þremur áföngum og miðar að framleiðslu allt að 100.000 tonna af rafeldsneyti á ári þegar fullum afköstum verður náð. Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri Norðurþings, segir verkefnið …

Krafa Gentle Giants á hafnasjóð Norðurþings nemur 91 milljón króna

Krafa Gentle Giants á hendur Hafnasjóði Norðurþings nemur rætt tæpri 91 milljón króna. Krafan var kynnt á fundi byggðarráðs Norðurþings í gær. „Stjórn Hafnasjóðs kemur saman í næstu viku til ræða viðbrögðin,“ segir Bergþór Bjarnason fjármálastjóri Norðurþings í samtali við Húsavík.com Um er að ræða fjárhæð sem byggir á …

„Hverfisráðin eru ekki tilgangslaus, en þau eru mjög bitlaus“

„Hverfisráðin eru ekki tilgangslaus, en þau eru mjög bitlaus. Þetta er bara eins og óskalisti og það tekur enginn eftir því þegar við fundum ekki,“ segir Nanna Steina Höskuldsdóttir, atvinnu- og samfélagsfulltrúi Norðurþings, um stöðu hverfisráða í sveitarfélaginu. Í Norðurþingi eiga að starfa fjögur hverfisráð: á Raufarhöfn, í Öxarfirði, …

Rúnar Traustason nýr oddviti M-Lista Samfélagsins

Rúnar Traustason, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og stöðvarstjóri Póstsins á Húsavík, mun leiða M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í maí. Bakland flokksins fundaði á Húsavík í gær og í samtali við Húsavík.com segir Rúnar að næstu sæti listans verði kynnt á komandi dögum. Áki Hauksson, núverandi bæjarfulltrúi M-Listans, …

Viljayfirlýsing vegna uppbyggingar álúrvinnslustöðvar til sveitarstjórnar

Byggðaráð Norðurþings samþykkti í dag að vísa til sveitarstjórnar viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á úrvinnslustöð áls á Bakka við Húsavík. Það er fyrirtækið Transatlantic Aluminium í samstarfi við Almex USA sem stefna að uppbyggingunni og eru þau meðal þeirra fyrirtækja sem tilgreind voru í tillögum starfshóps Forsætisráðuneytisins vegna stöðvunar PCC …

Bætt aðgengi og nýjar skiltamerkingar við Gullfiskatjörn

Nýjar skiltamerkingar hafa verið settar upp við gatnamót Þverholts og Garðarsbrautar auk nýrra skilta við Yltjörn sunnan við Húsavík, sem í daglegu tali er kölluð Gullfiskatjörnin. Þessar framkvæmdir ásamt fleiri jarðvegsframkvæmdum við tjörnina er hluti af styrkverkefni sem sveitarfélagið fékk úthlutað úr Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða árið 2023. Styrkurinn hljóðaði upp …