„Þetta var góður og gagnlegur fundur og sveitarfélögin öll á sama báti,“ sagði Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, í samtali við Húsavík.com í dag, en hann sótti í gær aðalfund Samtaka orkusveitarfélaga í Reykjavík ásamt Eysteini Heiðari Kristjánssyni, sveitarstjórnarfulltrúa og stjórnarmanni í Orkuveitu Húsavíkur.
„Helsta baráttumál samtakanna, allt frá stofnun þeirra árið 2011, hefur verið að fá fellda niður undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og tryggja þannig að sveitarfélögin fái fasteignaskatt af þessum mannvirkjum,“ sagði Eysteinn Heiðar í samtali við Húsavík.com.
Verði undanþága slíkra mannvirkja frá fasteignamati afnumin gæti breytingin skapað verulegar tekjur fyrir sveitarfélög þar sem orkuframleiðsla fer fram, þar á meðal Þingeyjarsveit. Þá gætu einnig falist í breytingunni umtalsverðar framtíðartekjur fyrir Norðurþing, meðal annars ef til uppbyggingar vindorku kemur innan sveitarfélagsins.
Í ályktun fundarins segir að núverandi fyrirkomulag leiði til þess að stór hluti mannvirkja sem nýtt eru við orkuframleiðslu greiði ekki fasteignaskatt til þeirra sveitarfélaga þar sem mannvirkin eru staðsett og áhrif starfseminnar komi fram. Skorar fundurinn á ríkisstjórn og Alþingi að ljúka afgreiðslu frumvarps þess efnis fyrir árslok.
Meðal þess sem samtökin leggja áherslu á er að álagningarhlutfall fasteignaskatts verði 0,7 prósent og að skatttekjurnar renni með skýrum og sanngjörnum hætti til þeirra sveitarfélaga og nærsamfélaga sem verða fyrir áhrifum af orkuvinnslunni.
Á fundinum í gær var jafnframt kosin ný stjórn og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, kjörinn formaður samtakanna, en Knútur Emil Jónsson frá Þingeyjarsveit var meðal nýrra kjörinna stjórnarfullltrúa.

