Hvernig brugðust hvalir Skjálfandafóa við sólmyrkvanum?

Gestir hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants á Húsavík voru í hópi þeirra heppnu sem upplifðu hinn einstaka sólmyrkva yfir Íslandi í síðustu viku. Tugir þúsunda gesta ferðuðust til Íslands til að fylgjast með þessum einstaka atburði en vestanvert landið var innan almyrkvasvæðisins. Frá öðrum landshlutum, þar á meðal hér á Norðurlandi, …

Óttast skerta opnun og fækkun starfa hjá Sjóböðunum vegna hækkunar virðisaukaskatts

Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% gæti haft bein áhrif á opnunartíma Sjóbaðanna á Húsavík, sérstaklega yfir vetrarmánuðina, og leitt til fækkunar stöðugilda. Ármann Örn Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Geosea, segir málið grafalvarlegt og að samkeppnishæfni greinarinnar sé undir. „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál og kemur til með …

Hvar er besta hvalaskoðun landsins? Húsavík fær afgerandi meðmæli ferðalanga og fyrirtækja

Miklar umræður hafa skapast í einum fjölmennasta Facebook-hópi ferðafólks um Ísland þar sem Alissa Menconi spurði einfaldlega: „Hvar er besta hvalaskoðun landsins: í Reykjavík, á Húsavík eða á Akureyri?“ Svörin létu ekki á sér standa og var Húsavík ítrekað nefnd sem besti kosturinn fyrir þau sem vilja upplifa hvali …

Jarðböðin opnuð á ný eftir umfangsmiklar endurbætur: Fyrsti gesturinn heimamaður

Jarðböðin við Mývatn, sem nú bera nafnið Earth Lagoon, opnuðu dyr sínar að nýju í morgun eftir umfangsmiklar endurbætur. Segja má að um nýtt baðlón sé að ræða, enda hefur öll aðstaða tekið stakkaskiptum og húsakosturinn nær fjórfaldast. Húsnæði Jarðbaðanna hefur stækkað úr um 1.100 fermetrum í 4.000 fermetra. …

Gatanöf prýðir forsíðu ferðakorts Norðurlands í ár

Markaðsstofa Norðurlands gaf nýverið út sitt árlega ferðakort en því er dreift um allan landshlutann og víðar. Kortið sem inniheldur hagnýtar upplýsingar og kort af lanshlutanum er gríðarlega vinsælt meðal ferðamanna og er prentað í tugum þúsunda eintaka. Að þessu sinni prýðir mynd Gunnars Jóhannessonar af Gatanöf forsíðu kortsins. …

Norðurþing gagnrýnir niðurskurð á Flugþróunarsjóði gegn yfirlýstri stefnu stjórnvalda

Byggðarráð Norðurþings gagnrýnir harðlega að í nýrri fjármálaáætlun ríkisins sé lagt til að 100 milljóna króna viðbótarframlag til Flugþróunarsjóðs verði fellt niður, á sama tíma og ríkisstjórnin boðar aukna dreifingu ferðamanna um landið og meiri stuðning við millilandaflug um aðra flugvelli en Keflavík. Byggðarráð samþykkti bókun á fundi sínum …

Steini og Helga stækka Húsavík Öl: „Þarna opnast möguleiki til að halda flotta tónleika og ýmiskonar viðburði“

Hjónin Þorsteinn Snævar Benediktsson og Helga Dagný Einarsdóttir standa nú í stórræðum við stækkun gestastofu brugghússins Húsavík Öl. „Við erum að stækka gestastofuna okkar og útbúa sal sem hentar betur til viðburða og getum nú tekið á móti mun fleiri gestum, stærðin hefur svolítið háð okkur,“ segir Þorsteinn Snævar …