Kiddi Óskars fagnar 45 árum í þjónustu bæjarins

Í dag er 45 ár síðan Kristbjörn Óskarsson hóf störf hjá Húsavíkurbæ, sem sendill á bæjarskrifstofunni, þann 1. júní 1981. Frá árinu 2006 hefur Kiddi svo starfað fyrir Norðurþing eftir sameiningu sveitarfélaganna hér á svæðinu. „Ég hef starfað með 7 sveitarstjórum, sá fyrsti var Bjarni Aðalgeirsson, þá Bjarni Þór Einarsson, næst Einar Njálsson, svo Reinhard Reynisson. Hjá Norðurþingi kom svo fyrstur Bergur Elías Ágústsson, svo Kristján Þór Magnússon og svo núna Katrín Sigurjónsdóttir. Þetta er allt hið vænsta fólk og hefur reynst mér vel,“ segir Kristbjörn í samtali við Húsavík.com.

„Ég ætla að ná 50 ára starfsafmælinu eftir 5 ár og jafvel fjórum árum betur, því þá verð ég búinn að ná Ásu Gísla í starfsaldri, en hún var í 53 ár hjá bænum og hætti núna í febrúar,“ sagði Kiddi kátur.