Aðalfundur Styrktarfélags HSN í Þingeyjarsýslum var haldinn nýverið en þar var farið yfir rekstur félagsins á árinu 2025 auk þess sem stjórn félagsins afhenti stjórnendum HSN gjafabréf fyrir þeim tækjum sem félagið hefur fjármagnað fyrir stofnunina. Alls styrkti sjóðurinn HSN um 16,7 milljónir króna til tækjakaupa árið 2025.
Tekjur félagsins námju alls 12,7 milljónum. Kvenfélögin í Þingeyjarsýslum styrktu félagið um rúmar 2 milljónir króna en þau hafa verið öflugur bakhjarl HSN undanfarin ár. Önnur framlög og gjafir námu um 8,5 milljónum króna. Auk þess skiluðu árgjöld félagsmanna um einni milljón króna og sala minningarkorta félagsins um 700 þúsund krónum.
Á fundinum afhenti stjórn félagsins helstu styrktaraðilum sínum þakkarbréf fyrir veittan fjárstuðning og voru alls átta félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar sem veittu þeim viðtöku.
Styrktarfélagið fagnar 30 ára afmæli á þessu ári en það var stofnað 1. febrúar 1996. Daníel Borgþórsson, formaður stjórnar félagsins, rifjaði upp í ræðu sinni aðdraganda að stofnun félagsins. Helsta ástæða þess að mönnum þótti nauðsynlegt að stofna slíkt félag, var niðurskurður í fjárlögum ríkisins sem leiddi til mun lægri fjárveitinga til heilbrigðismála og bitnaði það ekki síst á landsbyggðinni.
Í fystu stjórn Styrktarfélags Sjúkrahússins á Húsavík, eins og það nefndist við stofnun þess, voru Guðni Kristinsson á Húsavík, Böðvar Jónsson frá Gautlöndum, Björn Guðmundsson frá Lóni, Aðalbjörg Pálsdóttir úr Vallakoti og Jóhanna Aðalsteinsdóttir á Húsavík. Strax á fystu árum félagsins kom það að fjármögnun á mikilvægum lækningatækjum s.s. ristilspeglunar-, kvensjúkdóma- og hjartaþolprófstækjum. Einnig lagði félagið til fjármagn til endurbyggingar á gamla sjúkrahúsinu á Húsavík þar sem sjúklingar og aðstandendur þeirra sem koma lengra að geta dvalið.
Daníel rifjaði upp að í ræðu Svölu Hermannsdóttur þáverandi formanns sem haldin var á 10 ára afmæli félagins hafi fjöldi félaga verið 360. Í dag er fjöldi félaga 358 svo að ekki hefur náðst að fjölga félögum á þessum 20 árum. „Við hvetjum öll til að ganga í félagið,“ sagði Daníel í samtali við Húsavík.com og bætti við að árgjaldið væri aðeins 4000 krónur og hægt er að finna skráningareyðublað á facebook síðu félagsins.
„Stuðningur nærsamfélagsins er mikilvægur við uppbyggingu og viðhaldi á hinni öflugu heilbrigðisþjónustu sem þarf að standa vörð um hér í héraði. Enda er hann algjör forsenda fyrir því að hægt er að uppfæra tækjabúnað og fá þannig sérfræðilækna til að sinna þjónustu hér á svæðinu. Það má heldur ekki gleyma því að öflug heilbrigðisþjónusta styður við jákvæða byggðaþróun á svæðinu hvað varðar uppbyggingu atvinnutækifæra og þar með fjölgun íbúa,“ sagði Daníel.
Jón Helgi, forstjóri HSN, tók til máls á fundinum og þakkaði stjórn styrktarfélagsins fyrir vel unnin störf. Lagði hann áherslu á mikilvægi stuðningsins sem félagið veitir stofnuninni þar sem fjármagn sem kemur frá ríkinu til tækjakaupa sé afar lítið. Vel hafi gengið að manna sérfræðistöður á stofnuninni og það sé ekki síst vegna þess hve stofnunin er vel tækjum búin.
„Stjórn félagsins vill koma á framfæri þökkum til endurskoðunarfyrirtækisins Price Waterhouse Cooper sem hefur mörg undanfarin ár endurskoðað reikninga félagsins án endurgjalds og er það virkilega góður og vel metinn stuðningur við félagið,“ sagði Daníel að lokum.

