Meirihluti myndaður í Norðurþingi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsókn og Óskalisti undirrita málefnasamning

Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Óskalisti hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Norðurþings, en samkomulagið var í höfn í gærkvöldi og var málefnasamningur hins nýja meirihluta undirritaður rétt í þessu í húsnæði Orkuveitu Húsavíkur að Hrísmóum. Flokkarnir fjórir fara saman með sjö af níu fulltrúum sveitarstjórnar.

Samkvæmt samningnum verður sveitarstjóri áfram faglega ráðinn líkt og á síðasta kjörtímabili, en ákvörðun um ráðningu sveitarstjóra verður kynnt síðar.

Í tilkynningu frá flokkunum kemur fram að samstarfið byggi á stefnuskrám þeirra fyrir kosningarnar og að lögð verði sérstök áhersla á aðhald í rekstri sveitarfélagsins, atvinnuuppbyggingu, farsæld íbúa og bættar aðstæður barna og ungmenna.

„Það er meginmarkmið framboðanna að hafa að leiðarljósi breiða sátt og samvinnu þvert á alla flokka í allri vinnu fyrir íbúa í Norðurþingi, íbúum og atvinnulífi í samfélaginu til heilla,“ segir í samningnum.

„Kjósendur færðu okkur stóra áskorun“

Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir niðurstöðu kosninganna hafa kallað á víðtækt samstarf.

„Ég setti mér það markmið þegar ég gaf kost á mér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins að flokkurinn yrði í þeirri stöðu að loknum kosningum að geta valið með hverjum við mundum vinna í meirihluta og jafnframt að mynda sterkan meirihluta til að koma okkar málum og góðum málum samstarfsflokka í framkvæmd á komandi kjörtímabili,“ segir Helena.

Hún bendir á að fylgi flokkanna hafi verið mjög jafnt í kosningunum og að kjósendur hafi þannig fært stjórnmálafólki „stóra áskorun“.

Helena segir að samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á síðasta kjörtímabili hafi verið farsælt og að góður samhljómur hafi verið með stefnumálum flokkanna fyrir kosningar. Þá hafi samstarf við Samfylkinguna verið gott á undanförnum árum og áherslur flokksins á málefni barna og ungmenna fallið vel að áherslum Sjálfstæðisflokksins.

Um Óskalistann segir hún að framboðið hafi komið nýtt inn í sveitarstjórn með áherslu á aukið samtal milli byggðarlaga sveitarfélagsins.

„Þau háðu heiðarlega og fallega kosningabaráttu, með ákalli um betra samtal á milli byggðalaga sveitarfélagsins, sem okkur þykir mikilvægt að bregðast við.“

Hlutverkaskipan liggur fyrir

Samkvæmt samkomulaginu verður hlutverkaskipan í helstu embætti og stjórnir með eftirfarandi hætti:

Forseti sveitarstjórnar verður af D-lista.
Annar varaforseti sveitarstjórnar verður af B-lista.
Formaður byggðarráðs verður af S-lista.
Formaður fjölskylduráðs verður af S-lista.
Formaður skipulags- og framkvæmdaráðs verður af D-lista.
Formaður stjórnar Orkuveitu Húsavíkur verður af D-lista.
Formaður hafnarstjórnar verður af B-lista.

Nýr meirihluti tekur við stjórn sveitarfélagsins á fyrstu fundum nýkjörinnar sveitarstjórnar á næstu dögum.

> Lesa málefnasamning hér: Málefnasamningur.pdf