Sameining stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum: “Viljum efla okkur enn frekar í heimabyggð”

Á aðalfundi Þingiðnar sem fór fram þann 19. maí voru ræddar hugmyndir um að hefja viðræður við Framsýn stéttarfélag og Starfsmannafélag Húsavíkur um sameiningu félaganna þriggja í eitt öflugt stéttarfélag á svæðinu.

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, segir í samtali við Húsavík.com að Framsýn og Starfsmannafélag Húsvíkur hafa tekið vel í þessa hugmynd og samþykkt að hefja viðræður um sameiningu þessara þriggja félaga. „Ég finn fyrir miklum áhuga forsvarsmanna þessara félaga að láta þetta ganga upp sem er verulega jákvætt,“ segir Aðalsteinn.

Málið hefur áður verið rætt innan Fulltrúaráðs stéttarfélaganna, sem skipað er fulltrúum frá Framsýn, Þingiðn og Starfsmannafélagi Húsavíkur. Þar var samþykkt yfirlýsing þar sem hvatt er til þess að félögin hefji formlegar viðræður um sameiningu og að þeim verði lokið fyrir lok árs 2026. Reynist vilji fyrir sameiningu verður markmiðið að leggja tillögu þess efnis fyrir aðalfundi félaganna næsta vor.

Aðalsteinn segir að markmiðið sé að efla stéttarfélagsstarf í heimabyggð. „Félögin sem eiga skrifstofu stéttarfélaganna vilja hefja viðræður um að sameina félögin þrjú í eitt öflugt félag. Félög víða um land hafa haft tilhneigingu til að sameinast burtu frá svæðunum, en við viljum efla okkur enn frekar hér í heimabyggð,“ segir Aðalsteinn.

Hann bendir á að stéttarfélögin hafi gegnt mikilvægu samfélagslegu hlutverki um árabil og styrkt fjölmörg jákvæð verkefni á svæðinu.

„Félögin hér hafa verið að láta gott af sér leiða með ýmsum hætti í samfélaginu og við viljum halda því merki á lofti áfram með öflugum hætti,“ segir hann.

Samkvæmt upplýsingum sem kynntar voru á aðalfundi Þingiðnar voru góðar umræður um málið og samþykkt að skoða bæði kosti og galla sameiningar áður en tekin verður endanleg ákvörðun.

Verði af sameiningunni yrði til eitt af stærri stéttarfélögum landsbyggðanna með starfssvæði um allar Þingeyjarsýslur og sameinaðan kraft félagsmanna úr ólíkum starfsstéttum.