Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings tilkynnti samstarfsfólki sínu í morgun að hún myndi ekki halda áfram sem sveitarstjóri. Þetta hefur Húsavík.com eftir áreiðanlegum heimildum. Samkvæmt heimildum er líklegt að ráðning nýs sveitarstjóra Norðurþings verði kynnt fyrir helgi.
Í sáttmála nýs meirihluta í sveitarstjórn sem kynntur var í gær kemur fram að sveitarstjóri verði faglega ráðinn.
Katrín tók við starfi sveitarstjóra Norðurþings í ágúst 2022 og var þá ráðin úr hópi 17 umsækjenda um starfið. Katrín var áður sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Ekki náðist í Katrínu við vinnslu fréttarinnar.
Ritstjóri Húsavík.com þakkar Katrínu fyrir ánægjulegt samstarf og viðkynni.

