Golfklúbbur Húsavíkur: Miðvikudagsmótaröðin verður Íslandsbankamótaröðin

Golfklúbbur Húsavíkur og Íslandsbanki hafa gert með sér samstarfssamning sem hefur það að markmiði að styðja við barna- og unglingastarf félagsins. Þá verður Íslandsbanki líkt og undanfarin ár bakhjarl miðvikudagsmótaraðarinnar, sem fær nafnið Íslandsbankamótaröðin, sem er innanfélagsmót GH og telur alls 7 mót.

„Að styðja vel við æskulýðs- og íþróttastarf skiptir Íslandsbanka miklu máli og því við hæfi að styðja við það flotta starf sem Golfklúbbur Húsavíkur sinnir á svæðinu“. segir Helga Dögg útibússtjóri Íslandsbanka á Húsavík.

„Við hjá Golfklúbbi Húsavíkur erum afar þakklát fyrir áframhaldandi samstarf og stuðning Íslandsbanka. Stuðningurinn er mikilvægur fyrir starfsemi klúbbsins og sérstaklega fyrir barna- og unglingastarfið, sem er ein af okkar mikilvægustu áherslum,“ segir Benedikt Þór, rekstrarstjóri Golfklúbbs Húsavíkur.