Fasteignamat í Norðurþing: Sérbýli hækkar mest á Raufarhöfn og fjölbýli á Húsavík

Nýtt fasteignamat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fyrir árið 2027 sýnir að fasteignaverð heldur áfram að hækka í Norðurþingi, þó hægar en undanfarin ár. Gera má ráð fyrir að áföll í atvinnulífi á Húsavík ráði þar mestu um.

Mest er hækkunin sérbýlis á Raufarhöfn þar sem fasteignamat hækkar um 8,4% milli ára, en í fjölbýli á Húsavík hækkar fasteignamat fjölbýlis um 11,7%.

Samkvæmt gögnum HMS er meðalverð á fermetra í sérbýli á Húsavík nú metið 353 þúsund krónur og 439 þúsund krónur í fjölbýli. Fasteignamat sérbýla hækkar um 0,7% en fjölbýlis um 11,7%.

Á Kópaskeri hækkar fasteignamat sérbýla um 0,1% og fjölbýla um 6,5%. Meðalfermetraverð er þar 126 þúsund krónur í sérbýli og 110 þúsund krónur í fjölbýli.

Á Raufarhöfn er hækkunin mest innan Norðurþings. Þar hækkar fasteignamat sérbýla um 8,4% og fjölbýla um 6%. Meðalfermetraverð er metið 101 þúsund krónur í sérbýli og 65 þúsund krónur í fjölbýli.

Hækkar minna en verðbólga

HMS bendir á að fasteignamat íbúðarhúsnæðis á landsvísu hækki aðeins um 1,2% milli ára og lækki því að raunvirði um 3,8%, þar sem hækkunin heldur ekki í við almenna verðbólgu.

Heildarmat fasteigna á Íslandi nemur nú 17,8 billjónum króna og hækkar um 2,1% milli ára. Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 4,8% og sumarhúsa um 4,7%.

Bolungarvík hækkar mest á landinu

Mest hækkun fasteignamats á landinu er í Bolungarvík. Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri vakti athygli á því á Facebook að Vestfirðir væru sá landshluti sem hækkaði mest samkvæmt nýju mati HMS.

„Hækkunin er drifin áfram af Bolungarvík, sem er að hækka mest allra sveitarfélaga á landinu, eða um 11,1%,“ skrifar Jón Páll og bætir við að fasteignaverð sé góður mælikvarði á efnahagslega stöðu samfélaga. Hann segir Bolungarvík vera samfélag í vexti og að framtíðin sé björt.

Ljósmynd: Rafnar Orri Gunnarsson