Rúnar Óskarsson: „Ég sé alls staðar verkefni, en allt í lagi að prófa einn frídag í viku“

Eitt af öflugustu ferðaþjónustufyrirtækjum í Norðurþingi, Fjallasýn Rúnars Óskarssonar, hefur verið selt að hluta til SBA-Norðurleiðar. Um er að ræða þann hluta rekstrarins sem snýr að hópferðum og ferðatengdri þjónustu.

Samkvæmt tilkynningu frá SBA felast viðskiptin í kaupum á 12 bifreiðum, vörumerki Fjallasýnar, viðskiptavild og öðrum rekstrartengdum eignum sem tengjast starfseminni.

Rúnar Óskarsson, stofnandi og eigandi Fjallasýnar, var við Goðafoss með stóran hóp ferðamanna þegar blaðamaður Húsavík.com náði tali af honum í morgun.

„Við höldum áfram með öll okkar verkefni sem búið er að bóka, en þurfum ekki að takast á við það að finna bílunum vinnu í vetur og haust,“ segir Rúnar.

Fjallasýn hefur verið einn af burðarásum ferðaþjónustunnar á Húsavíkarsvæðinu um árabil og byggt upp öflugt fyrirtæki með fjölbreytta starfsemi og sterkt orðspor meðal ferðaskipuleggjenda og viðskiptavina.

Rúnar hefur sjálfur verið á fullu í rekstrinum í áratugi og viðurkennir að breytingarnar verði töluverðar.

„Þetta verður mikil tilbreyting, en ég sé alls staðar verkefni þó ég hætti að keyra ferðafólk. Það er allt í lagi að fara að prófa að eiga einn frídag í viku með haustinu,“ segir hann og hlær.

Í tilkynningu SBA segir að með kaupunum styrki fyrirtækið stöðu sína á sviði ferðatengdrar þjónustu og fólksflutninga á helstu markaðssvæðum sínum. Jafnframt verði til öflugur grunnur fyrir áframhaldandi uppbyggingu, aukið þjónustuframboð og frekari þróun þeirra verkefna sem Fjallasýn hefur byggt upp á undanförnum árum.

„Við erum afar ánægð með þessi kaup. Fjallasýn hefur byggt upp öflugt fyrirtæki með gott orðspor. Með þessum kaupum fáum við til liðs við SBA góða viðbót sem fellur vel að núverandi rekstri SBA og skapar spennandi tækifæri til framtíðar,“ er haft eftir Gunnari M. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra SBA.

SBA rekur flota um 110 hópferðabíla sem sinna fjölbreyttum verkefnum um allt land og mun áfram byggja á því vörumerki og þeirri þjónustu sem Fjallasýn hefur skapað á undanförnum árum.