Ófullnægjandi brunavarnir í húsakynnum Tónlistarskóla Húsavíkur

Guðni Bragason, skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur, hefur ítrekað áhyggjur sínar af brunavörnum og öryggi nemenda og starfsfólks skólans í erindi til Norðurþings. Þar kemur fram að við brunaæfingu árið 2022 hafi komið í ljós að engin bjalla tengd brunaviðvörunarkerfi hússins væri í álmu tónlistarskólans.

Í kjölfar æfingarinnar fundaði Guðni með þáverandi slökkviliðsstjóra og var niðurstaðan að koma þyrfti fyrir bjöllum og blikkandi ljósum í öllum kennslustofum skólans. Að sögn Guðna hefur ekkert verið aðhafst í málinu þrátt fyrir ítrekanir hans.

Við aðra brunaæfingu árið 2025, þar sem kennsla fór fram með hefðbundnum hætti, komu aðeins tveir af tíu kennurum út úr skólanum. Aðrir kennarar heyrðu hvorki í brunaboðum né umgangi á göngum skólans.

Guðni bendir jafnframt á að flóttaleiðir séu fáar og þröngar, sérstaklega í kjallara skólans, og óskar eftir úttekt á húsnæðinu. Fer hann fram á að þegar verði ráðist í úrbætur til að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks.

Erindið var tekið fyrir á fundi skipulags- og framkvæmdaráðs Norðurþings í vikunni. Ráðið fól sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að koma brunavörnum og öryggismálum í viðeigandi horf í Tónlistarskóla Húsavíkur.