Þrátt fyrir stórt áfall í atvinnulífi í Norðurþingi með lokun verksmiðju PPC í fyrra, þá virðist áhugi á uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík sjaldan hafa verið meiri en í dag. Undanfarið ár hefur Norðurþing undirritað 6 viljayfirlýsingar um uppbyggingu á svæðinu, auk þess sem fleiri verkefni eru á frumstigi skoðunar.
Nú í aðdraganda kosninga mun Húsavík.com birta ítarlegar fréttaskýringar þar sem kafað verður stöðu og fyrirætlanir þeirra fyrirtækja sem hafa undirritað viljayfirlýsingar við Norðurþing. Hér er um að ræða fjölbreyttan hóp fyrirtækja; gagnaverafyrirtækið GIGA-42, landeldisfyrirtækið Bakkavík, þýska efna- og byggingarefnafyrirtækið Heidelberg Materials, kolefnisbindingarfyrirtækið Carbix, álendurvinnslufyrirtækið TAA Transatlantic Aluminium og orkufyrirtækið E-Valor sem vinnur að framleiðslu rafeldsneytis.
„Samhliða þessum verkefnum eru fjölmörg önnur sem hafa skoðað Bakka með tilliti til framtíðaruppbyggingar. Verkefnin sem þegar hafa verið undirrituð eru mislangt komin, meðal annars vegna þeirra rannsókna og umhverfismats sem þau krefjast,“ segir Björn Gíslason, verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka
Fyrsta fréttaskýringin er um bresk-norska fyrirtækið GIGA-42, sem samkvæmt heimildum Húsavík.com úr stjórnsýslu Norðurþings er það verkefni sem lengst er á veg komið og jafnframt það sem þykir líklegast til að raungerast, og mun ítarleg fréttaskýring um fyrirtækið birtast á Húsavík.com í hádeginu dag.
Fyrsta fréttaskýringin birtist hér á vefnum klukkan 12:00 í dag.

