Björgunarsveitin Pólstjarnan

Nýji björgunarsveitarbíllinn á Raufarhöfn

Björgunarsveitin Pólstjarnan á Raufarhöfn var með opinn fund í vikunni þar sem starfsemi sveinarinnar var kynnt, styrkur fyrir ungliðahreyfingu var rædd, og tilkomu nýs björgunarsveitarbíls var kynntur fyrir íbúum.  Bíllinn er Toyota Landcruser 80 og hans helsti kostur er að það er hægt að koma einstakling á börum inn í bílinn. Árni í Sveinungsvík var maðurinn sem sá um að selja gamla bílinn og kaupin á þessum nýja. Nýji Landcruserinn er rúmbetri en sá fyrri og gefur meiri kosti í björgunarsveitarstörfum á þessu víðferfma svæði sem Pólstjarnar á undir. Auk þess er búið að kaupa sæþotur sem nýtast vel í björgun á sjó og koma þær á komandi vikum.  Þessi kostur eykur fjölbreyttnina í sjóbjörgun og getur einfaldað aðgerðir björgunarsveitarinnar.

Þann 1.maí  stóð Pólstjarnan fyrir bingói til styrktar starfseminni og var það vel sótt  en um 80 manns mættu enda voru vinningarir veglegir. Á fundinum var kallað eftir  nýjum meðlimum  og rætt hver verkefnin væru svona á ársgrunndvelli og hvernig félgamenn geta tekið þátt óháð að vera endilega í útköllum sem er sjálfsögðu ekki allra en allir geta hjálpað til með einum eða öðrum hætti.  Sveitin mun vinna að fleiri fjáröflunum s.s. á sjómannadaginn og Sólstöðuhátiðinni á Kópaskeri í sumar.

Það er að sjálfsögðu mismunandi eftir veðri og vindum hversu mörg útköllin eru en eins og allir muna hvernig veðrið var hér um páskanna að þá sinnti Pólstjarnan nokkrum útköllum sem tengstust vegfærendum og að sinna lokunarpóstum á Raufarhafnarvegi.

Björgunarsveitin Póstjarnar vill þakka velunnurum fyrir aðstoðina og stuðninginn og vill koma því á framfæri að Björgunarsveitin Pólstjarnan eru alltaf til staðar og tilbúin að hjálpa þegar þörf er á.