Formaður Framsýnar fundaði með forstjóra Landsvirkjunar um málefni Bakka

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, fundaði á mánudag með Herði Arnarssyni, forstjóra Landsvirkjunar, í Reykjavík fyrir hönd stjórnar félagsins. Á fundinum fór Hörður yfir áform Landsvirkjunar um frekari orkuvinnslu á Þeistareykjum og Kröflu, auk þess sem rætt var um þann áhuga sem fjárfestar hafa sýnt frekari uppbyggingu á Bakka …

Fengu 4 milljón dollara fjárfestingu og stöðuleyfi á lóð Orkuveitu Húsavíkur

Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings samþykkti á fundi sínum í dag að veita fyrirtækinu Syntholene Energy stöðuleyfi fyrir tímabundinn búnað á lóð Orkustöðvarinnar að Hrísmóum. Um er að ræða þrjá 20 feta gáma, starfsmannahús, sex feta tengigám og sex hráefnatunna sem fyrirhugað er að setja upp á svæðinu. Fyrir liggur …

Norðursigling og Húsavík Adventures gera 100 milljóna kröfu á Norðurþing

Fyrir fundi byggðarráðs Norðurþings í morgun lágu tvær kröfur um endurgreiðslu farþegagjalda sem greidd hafa verið í Hafnasjóð Norðurþings. Kröfurnar koma frá Norðursiglingu og Húsavík Adventures og nema samanlagt rúmum 100 milljónum króna. Rúmlega 90 milljón króna krafa Gentle Giants á hendur Hafnasjóði Norðurþings var kynnt á fundi ráðsins …

Rætt við formann Framsýnar og forseta sveitarstjórnar í kvöldfréttum RÚV

Rætt var við Aðalstein Árna Baldursson formann Framsýnar og Hjálmar Boga Hafliðason forseta sveitarstjórnar Norðurþings í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld. Tilefnið var staðan á Húsavík eftir að starfsemi kísilvers PCC á Bakka var stöðvuð og áhrif þess á atvinnulíf og byggð á svæðinu. Í fréttinni kom fram að atvinnuleysi …

Transatlantic Aluminum undirritar viljayfirlýsingu við Norðurþing

Félagið Transatlantic Aluminum hefur undirritað viljayfirlýsingu við sveitarfélagið Norðurþing um að kanna möguleika á uppbyggingu álúrvinnsluverksmiðju á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurþingi í dag, en sveitarfélagið hefur undanfarið verið að gera viljayfirlýsingar við þau félög sem hafa sett af stað könnun á uppbyggingu á …

Formaður Framsýnar á Iðnþingi: Allir vinni saman að uppbyggingu á Bakka

Iðnþing 2026 fór fram í Silfurbergi í Hörpu í vikunni. Samtök iðnaðarins stóðu að þinginu sem að þessu sinni bar yfirskriftina „Finnum samhljómin“. Metskráning var á þingið og yfir 700 gestir sátu þingið. Meðal gesta var Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags í Þingeyjarsýslum, sem sérstaklega var boðið að …

Gunnhildur í Sparisjóðnum heiðruð fyrir störf í þágu verslunar í heimabyggð

Gunnhildur Gunnsteinsdóttir og Heiðar Hrafn Halldórsson voru heiðruð á aðalfundi Markþings sem fram fór á Húsavík í gærkvöldi. Í fyrsta sinn í sögu samtakanna var útnefndur sérstakur heiðursmeðlimur Markþings. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem sýnt hefur af sér framúrskarandi baráttu í þágu verslunar eða ferðaþjónustu í heimabyggð, án þess …

Stjórn hafnasjóðs segir ákvarðanir hafa verið teknar af meiri heift en skynsemi

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings fundaði í morgun vegna kröfu Gentle Giants á hendur sjóðnum sem nemur um 90,8 milljónum króna. Krafan byggir á dómi Landsréttar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hafnasjóður hefði ekki haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var. Hæstiréttur hafnaði …