Steini og Helga stækka Húsavík Öl: „Þarna opnast möguleiki til að halda flotta tónleika og ýmiskonar viðburði“

Hjónin Þorsteinn Snævar Benediktsson og Helga Dagný Einarsdóttir standa nú í stórræðum við stækkun gestastofu brugghússins Húsavík Öl. „Við erum að stækka gestastofuna okkar og útbúa sal sem hentar betur til viðburða og getum nú tekið á móti mun fleiri gestum, stærðin hefur svolítið háð okkur,“ segir Þorsteinn Snævar …

Markþing kallaði frambjóðendur til samtals um verslun og ferðaþjónustu

Markþing, áður Húsavíkurstofa, stóð í dag fyrir opnum fundi í Safnahúsinu á Húsavík þar sem málefni verslunar og ferðaþjónustu í Norðurþingi voru rædd. Fimm af sex framboðum í sveitarfélaginu sendu fulltrúa á fundinn og svöruðu þau bæði spurningum fundarstjóra og gesta úr sal. Fundinum stýrði Daníel Chandrachur Annisius, stjórnarmaður …

Tuttugastaogfimmta vertíð Gentle Giants á Skjálfanda byrjar með látum

Hvalaskoðunarvertíðin fór af stað hjá Gentle Giants nú um mánaðarmótin, en þetta er 25. starfsár fyrirtækisins á Skjálfanda. Húsavík.com sló á þráðin til Stefáns Guðmundssonar, forstjóra fyrirtækisins. „Frábær byrjun á 25. vertíð okkar hjá Gentle Giants. Sverrir var að finna fyrsta hnúfubak ársins, rétt vestur af höfninni, og Sarah …