Á kosningafundi Húsavík.com spurði Guðrún Helga Ágústsdóttir oddvita Framsóknar, Eystein Heiðar Kristjánsson, út í eitt af kosningaloforðum flokksins, þar sem gert er ráð fyrir gjaldfrjálsri 36 stunda leikskólavist. Hún velti fyrir sér hvernig ætti að framkvæma slíkt og hvaðan fjármagnið kæmi.
„Ég á börn á breiðu aldursbili, og þið eruð með í stefnuskránni ykkar gjaldfrjálsan 36 stunda leikskóla […] hvernig þið ætlið að framkvæmda 36 stunda gjaldfrjálsan leikskóla og hvaðan kemur sá peningur?,“ spurði Guðrún Helga.
Eysteinn sagði í samtali við Húsavík.com í dag að markmiðið væri skýrt: „Við viljum stefna að gjaldfrjálsri 36 stunda leikskólavist, og taka upp sveigjanleika í heimgreiðslum frá 12 til 18 mánaða aldurs.“
Á fundinum lagði hann áherslu á að um raunhæfa stefnu væri að ræða sem hefði þegar verið rædd við fagfólk:
„Þessi liður í okkar stefnuskrá er ekki eitthvað sem við köstum fram án ábyrgðar, við erum búin að eiga samtal við stjórnendur leikskólans þar sem við byrjuðum á að viðra þetta og hvernig þau myndu taka í þetta,“ sagði Eysteinn.
Samkvæmt honum voru stjórnendur jákvæðir gagnvart hugmyndinni og telja að breytingin gæti jafnvel haft í för með sér sparnað fyrir sveitarfélagið.
Sjá umræðu um málið á kosningafundi Húsavík.com í spilaranum hér að neðan:

