6. maí var opin fundur á Hótel Norðurljós á Raufarhöfn með fulltrúum Samfylkingar í Norðurþingi ásamt Kristrúnu Frostadóttur, forsetisráðherra og formanni Samfylkingarinnar. Umræðuefnið var hvað brennur heitast á íbúum á svæðinu fyrir sveitastjórnarkosningarnar.
Þarna mættu heimamenn úr ýmsum áttum; sjómenn, ferðaþjónustuaðilar, fulltrúar úr heilbrigðisstéttinni og aðrir íbúar á Raufarhöfn og nágrenni. Heitasta umræðuefnin voru að tryggja fjölbreytt störf á þessu svæði og eins var mikil umræða um vindorkuver sem og hvaða áhrif þau geta haft á ferðarþjónustuna og þá sýn sem heimamenn hafa á þessu svæði sem er mikið láglendi og slíkir vindorkugarðar geta sést víða.
Sjómenn létu í sér heyra og var rætt um strandveiðar og þá einnar helst það tímabil sem lagt er út með. Það er kannski ekki hagstæðast veiðilega séð hér sem er kannski fyrir vestan. Eða eins og einn viðmælandinn sagið að sólin kemur ekki eins upp á Þingvöllum og í Árbyrgi. Rætt var fram og til baka hvernig hagstæðast væri að haga strandveiðiskerfinu svo allir þeir sem eru á strandveiðum fái það sem þeir eiga.
Rætt var um breytingu á atvinnumarkaði þar sem ætti að auka vilja til að störf geti verið unnin óþarft landsvæði. Var þá sértaklega rætt um hlutverk sýrslumannsembættis og það að starfmenn sýslumanns geta unnið víðsvegar um landið.
Það voru allir sammála á þessum fundi að sameining sveitafélagsins hefur ekki gengið eins vel og ætlast til en 20 ár eru liðin síðan sameining hófst. Mikið þarf að vinna að því að íbúar innan sveitafélagsins finnist þeir vera ein heild. Þá var líka rætt um að kannski væri gerlegt að búa til samtök smáþorpa á landinu sem gætu unnið saman í þeirri baráttu að halda samfélagi og grunnstarfsemi gangandi.
Æðarbændur létu í sér heyra og kalla á breytingar varðandi þá skaðseimi sem vargur getur átt í varplendi s.s. minkurinn en ekki er vitað hve stofninn er stór og hafin er umræða um friðun allra villtra spendýra en æðarbændur mótmæla því harðlega þar sem bæði minkur og refur hefur mikil áhrif á varpland. Sveitafélagið hefur ekki sinnt þessum málaflokki að fullum skilningu og þekkingu hvað fellst í refa og minkaveiðum.
Ýmis önnnur mál voru rædd s.s. staða sjúkraflutningamanna í Norðurþingi, hvernig við búum til fleiri störf á landsbyggðinni, nýtt framboð til sveitarstjórnarkostninga , hugmyndir um lýðskóla, vegagerðinn og margt annað.
Að lokum þakkaði Kristrún fyrir sig og fagnaði þeirri umræðu sem átti sér stað þennan napra morgun í maí.

