Arna Ýr Arnarsdóttir, fjármála- og áfangastjóri Framhaldsskólans á Húsavík og frambjóðandi í 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, spurði Kjartan Pál Þórarinsson, oddvita Samfylkingarinnar, út í loforð um sameiginleg íþróttamannvirki í kappræðum Húsavík.com um helgina.
„Ég sé þetta ekki alveg raungerast á þessu kjörtímabili,“ sagði Arna og spurði hvernig flokkurinn sæi fyrir sér að framkvæmdin félli innan framkvæmdafjár sveitarfélagsins.
„Orð eru til alls fyrst,“ svaraði Kjartan og benti á að fjöldi íþróttagreina hafi lengi verið á hrakhólum hvað varðar húsnæði, meðal annars jóga, nudd, crossfit og lyftingar. „Leigutekjur eiga að standa undir þessu. Það verður farið í útgjöld en tekjur koma á móti. Fyrsta verk okkar verður að taka þetta samtal við viðkomandi aðila,“ sagði Kjartan Páll.
Ljósmynd með frétt: Skjáskot úr streymi / Marta Ýr

