„Allt á góðu róli“ hjá yfirkjörstjórn Norðurþings fyrir kosningarnar

Undirbúningur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram í Norðurþing á laugardag stendur nú sem hæst og að sögn Karls Hreiðarssonar, formanns yfirkjörstjórnar, gengur allt samkvæmt áætlun. „Það gengur vel og allt á góðu róli,“ sagði Karl í samtali við Húsavík.com. Hann segir síðustu daga hafa farið í undirbúning talningarinnar og að tryggja að allt sem þarf sé til staðar þegar kjördagur rennur upp.

„Við erum búin að vera að undirbúa talninguna síðustu daga, að öll aðföng séu til staðar og skipuleggja hana. Við erum vanari að sjá um allt hitt sem við kemur kosningum, en talning er bara hér þegar eru kosningar til sveitarstjórnar,“ sagði Karl.

Mikil áhersla sé lögð á að öllum formsatriðum sé fylgt í hvívetna. „Það er verið að gæta að því að öllum formsatriðum sé fylgt, að allt sé rétt auglýst og mikið af vörðum sem þarf að ganga úr skugga um að séu uppfylltar.“

Alls verða fimm kjördeildir í Norðurþingi, á fjórum kjörstöðum. Tvær kjördeildir verða á Húsavík, auk kjörstaða í Skúlagarði í Kelduhverfi, skólanum á Kópaskeri og í Ráðhúsinu á Raufarhöfn.

Karl segir stefnt að því að talning gangi hratt og vel fyrir sig á kosninganótt. Síðast hafi Norðurþing verið fyrst sveitarfélaga á landinu til að ljúka talningu.

„Síðast var talningu lokið fyrir klukkan eitt eftir miðnætti og þá vorum við fyrst á landsvísu. Ég ætla ekki að leggja heiður minn að veði að það náist aftur, en ég hef væntingar til að við klárum ekki mikið seinna en um klukkan tvö á kosninganótt,“ sagði hann.