Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Framsókn í samtali um myndun meirihluta

Fulltrúar í nýkjörinni sveitarstjórn Norðurþings halda spilunum þétt að sér þessa dagana, en samkvæmt heimildum Húsavík.com úr baklandi nokkurra framboða eru óformlegar viðræður þegar hafnar milli Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknarflokks, um myndun nýs meirihluta.

Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks og fyrsti fulltrúi í nýrri sveitarstjórn vildi aðspurð hvorki staðfesta né mótmæla að þetta væri sá meirihluti sem til skoðunar væri, formlegar viðræður væru ekki farnar af stað, en staðfesti að hún væri búin að heyra í öllum oddvitum og „eiga aðeins dýpri samtöl við suma.“

Samkvæmt heimildum Húsavík.com úr baklandi Framsóknarflokks þá er ekki full samstaða þar um að fara í meirihluta, en ákveðinn hluti flokksmanna telur réttara að flokkurinn sé í minnihluta þetta kjörtímabil og „nái vopnum sínum“ eins og einn viðmælandi orðaði það. Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur en fer úr 23.9% fylgi 2022 í 20.3% nú. Samfylkingin er sá flokkur sem bætir mest við sig af þeim framboðum sem voru í kjöri 2022 og fer úr 12.9% í 18.6% nú. Framsókn missir á hinn boginn mikið fylgi, fer úr 31.6% prósent í 18.1% nú og missir fulltrúa, en við það féll fyrri meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.

Nokkurrar gremju gætir meðal viðmælenda Húsavík.com á Kópaskeri og Raufarhöfn með að mögulega eigi að ganga framhjá Óskalistanum við myndun nýs meirihluta, en listinn kemur nýr inn og tryggði sér 13.9% atkvæða.

Ekki náðist í oddvita Samfylkingar og Framsóknarflokks við gerð fréttarinnar.