Eins og lesendur Húsavík.com flestir vita er Leikfélag Húsavíkur á leið til Reykjavíkur í næsta mánuði að sýna uppfærslu félagsins á Rocky Horror í Þjóðleikhúsinu (eða Þjóðlíkhúsinu eins og þau kalla það), en uppfærsla félagsins var valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins hér á landi. Miðasala hefur gengið vonum framar og um helgina fengu þau að vita að Þjóðleikhúsið byði þeim að sýna tvisvar vegna mikils áhuga.
Þær Helga Sigurjónsdóttir og Katla Marín Þorkelsdóttir úr stjórn Leikfélagsins mættu í kosningavöku Húsavík.com og ræddu um ævintýrið í vetur og hvað er framundan í júní. Hægt er að horfa á viðtalið í spilara Húsavík.com hér að neðan.

