Lokatölur úr Norðurþingi: Sex framboð fá fulltrúa í nýrri sveitarstjórn

Lokatölur úr sveitarstjórnarkosningunum í Norðurþingi lágu fyrir klukkan 00:43 í nótt. Sex listar buðu fram og fá þeir allir fulltrúa kjörna í nýja sveitarstjórn.

Atkvæðin skiptust þannig:

B-listi Framsóknarflokksins: 298 atkvæði
D-listi Sjálfstæðisflokksins: 334 atkvæði
M-listi Samfélagsins: 251 atkvæði
Ó-listi Óskalistans: 228 atkvæði
S-listi Samfylkingarinnar: 306 atkvæði
V-listi Velferðar: 225 atkvæði

Á kjörskrá voru 2.342 en alls greiddu 1.687 atkvæði. Kjörsókn var því um 72%.

Talning atkvæða fór fram í Borgarhólsskóla á Húsavík og samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórn gekk hún vel fyrir sig.

„Talningin gekk mjög vel. Starfsfólk í kjörstjórnum vann gríðarlega gott starf, vandað og gott verk,“ sagði Karl Hreiðarsson í samtali við Húsavík.com.