Sveitastjórnarkosningar  2026

Kjörsókn á Raufarhöfn var mjög góð og segir formaður kjörstjórnar að það sé áberandi hve margir komu á kjörstað en 77,36 % kjósenda nýttu sér kosningarétt sinn hér sem er mun betra en 2022.  Það vakti athygli  að sá fyrsti sem kaus á Raufarhöfn er með þeim yngri sem hafa kosningarétt en hann flutti hingað á Raufarhöfn 2021 frá Portúgal.

Björgunarsveitin Pólstjarnan sá fyrir kosningakaffi í Hnitbjörg sem var sannarlega vel sótt af kjósendum á svæðinu. Elvar Már, fimmti á lista Ó -listans fagnar kosningabaráttunni.  Þetta er nýr vettvangur sem hann sé að stíga inni í  og alltaf gott að hitta fólk og spjalla saman um hvernig við bætum samfélagið, pólitík er ekki bara pólitík og það er alltaf hægt að læra og vinna að því byggja upp betra samfélag fyrir alla íbúa í Norðurþingi.