Í febrúar er áætlað að Artemis 2 fljúgi umhverfis tunglið og verður það í fyrsta sinn í 54 ár sem mannað geimfar flýgur til tunglsins. Auðvitað leika Þingeyjarsýslur stórt hlutverk í undirbúningi leiðangursins. Artemis 2 markar einnig ánægjuleg tímamót í sögu geimferða, en Christina Koch verður nú fyrsta konan til að fljúga umhverfis tunglið.
Christina Koch er fædd í Grand Rapids í Michigan-fylki árið 1979 og hefur þegar dvalið 328 daga á braut um jörðu, en verður nú fyrst kvenna til að flúga út fyrir lága jarðbraut og alla leið til tunglsins. Þótt áhöfnin muni ekki lenda á yfirborðinu að þessu sinni, mun ferðin ryðja brautina fyrir komandi leiðangra, en áætlað er að Artemis 3 lendi á tunglinu, en það var síðast gert árið 1972.
Að sögn Cindy Evans, sem leiðir jarðfræðiþjálfun Artemis geimfaranna, sögðu Apollo-geimfararnir Ísland það svæði á jörðu sem mest líktist tunglinu og því var ákveðið að nota sömu svæði í Þingeyjarsýslum til þjálfunarinnar að þessu sinni. Sumarið 2024 komu geimfararnir fjórir úr leiðangrinum til æfinga, m.a. í nágrenni við Öskju og í Drekagil. „Hér eru sömu ferli og á tunglinu, eldvirkni, basalt og breksíur, og landslagið hefur rétta stærð og ásýnd,“ segir Evans.
Fyrsti mögulegi skotgluggi Artemis II opnast dagana 5. til 11. febrúar, með áætlaðri skotdagsetningu ekki fyrr en 6. febrúar. Það er ánægjulegt að Ísland leiki enn á ný stórt hlutverk í mönnuðum ferðum til tunglsins og mun Húsavík.com fylgjast vel með leiðangrinum og segja ítarlegar frá þjálfun geimfaranna hér meðan á leiðangrinum stendur.

