Hafa opnað fyrir umsóknir í frumkvæðissjóði á Raufarhöfn og í Öxarfirði

Íbúafundir sem haldnir voru dagana 26. og 27. janúar í Lundi í Öxarfirði og á Raufarhöfn í tengslum við tilraunaverkefnið Brothættar byggðir heppnuðust afar vel, að því er fram kemur í tilkynningu frá Norðurþingi. Fundirnir, sem báru yfirskriftina „Hvað er að malla í pottunum?“, voru haldnir í samstarfi Norðurþings, SSNE og Byggðastofnunar.

Að lokinni kynningu á Frumkvæðissjóðunum var boðið upp á notalegt og óformlegt spjall yfir heitri súpu. Mæting var mjög góð á báðum stöðum og skapaðist hlý og jákvæð stemning. Þátttakendur sýndu mikinn áhuga á þeim styrkjum og tækifærum sem verkefnið býður upp á og er mat verkefnisstjóra að búast megi við fleiri umsóknum en á árinu 2025.

Á fundunum sköpuðust einnig líflegar og uppbyggilegar umræður um framtíð samfélaganna, ný tækifæri og sameiginlegar áskoranir. Margir íbúar deildu hugmyndum sínum og sýn á næstu skref, með áherslu á aukið samstarf og þróun nýrra verkefna á svæðunum.

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð Raufarhafnar og framtíðarinnar II og Frumkvæðissjóð Öxarfjarðar í sókn II. Umsóknarfrestur er til klukkan 13:00, mánudaginn 16. febrúar 2026.

Veittir verða verkefnastyrkir fyrir hugmyndir sem samræmast markmiðum verkefnisins og styðja við áframhaldandi uppbyggingu samfélaganna. Ekki er gerð krafa um mótframlag, en umsóknir styrkjast ef verkefni fela í sér samstarf, virkja fleiri aðila eða leiða til nýsköpunar á svæðinu.

Verkefnisstjórar svæðanna eru Nanna Steina Höskuldsdóttir, fyrir hönd SSNE og Norðurþings, og Einar Ingi Einarsson, atvinnu- og samfélagsfulltrúi Norðurþings. Þau bjóða bæði upp á viðtalstíma og ráðgjöf vegna hugmyndavinnu og umsóknarskrifa og eru íbúar hvattir til að nýta sér þá þjónustu.