Í janúar fengum við 34.832 heimsóknir á vefinn Húsavík.com og staðfesta þessar tölur mikinn áhuga á staðbundinni fjölmiðlun. Nú eru liðnir tveir mánuðir síðan vefurinn hóf reglubundna fréttamiðlun á íslensku, eftir að hafa í 15 ár birt fréttir frá Húsavík á ensku.
Janúar var viðburðaríkur mánuður á Húsavík og í nágrenni og fjölmörg fréttamál vöktu mikla athygli lesenda. Mikil umræða skapaðist um niðurrif Helguskúrs. Þá var áberandi hversu annasamt hefur verið hjá Slökkviliði Norðurþings. Á gamlárskvöld þurftu slökkviliðsmenn að bregðast við gróðureldum í Húsavíkurfjalli og nú undir lok janúar kom upp húsbruni í Haukamýri.

Sú frétt sem var mest lesin í janúar fjallaði um að ferðaþjónustufyrirtækið Fjallasýn hefði tekið við rekstri landsbyggðarstrætó á Norður- og Norðausturlandi. Þar kom fram að fyrirtækið leit á verkefnið sem mikilvægan þátt í að tryggja stöðugleika fyrir starfsfólk sitt á tímum fyrirsjáanlegs samdráttar í komum skemmtiferðaskipa.
Mikla athygli vakti einnig frétt um sölu veitingastaðarins Gamla Bauks á Húsavík, þar sem nýir eigendur tóku við rekstrinum og húsakosti staðarins. Fréttir úr atvinnulífinu hafa almennt verið mikið lesnar og eru mest lesnu fréttir og greinar úr þeim flokki og svo á mannlegum nótum. Af mannlífsfréttum stóð sérstaklega upp úr frétt af óþekktum einstaklingi sem gekk um bæinn og mokaði snjó og skóf bíla.

Sunnudagsviðtal við Ingu Björg Brynjúlfsdóttur, unga blakkonu úr Völsungi, vakti þá sérstaklega mikla athygi og var mest lesna viðtal okkar í janúar, en þrátt fyrir ungan aldur hefur Inga þegar skipað sér í hóp efnilegustu ungu íþróttamanna landsins. Viðtalið við Ingu fékk langmest viðbrögð af öllu efni Húsavík.com á samfélagsmiðlum nú í janúar. Þá voru fréttir af árangri Blakdeildar Völsungs mikið lesnar.
Mest lesna frétt úr nærsveitum fjallaði svo um að Friðgeir Sigtryggsson og börn hans hafi tekið við rekstri veitingastaðarins Dalakofans á Laugum. Skömmu síðar vakti einnig mikla athygli upprifjun í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá Kópaskersskjálftanum, atburði sem markað hefur djúp spor í sögu þorpsins.
Í vefsjónvarpi Húsavík.com var mest áhorf á áramótaþátt sem við framleiddum með nemendum Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit og myndbönd sem við framleiddum í samstarfi við STEM Húsavík.
Janúar sýndi okkur því glöggt að áhugi á staðbundnum fréttum er mikill og að lesendur sækjast bæði eftir upplýsingum um stór samfélagsmál og sögur sem endurspegla mannlíf og anda svæðisins.
Ritstjórn Húsavík.com þakkar lesendum fyrir áhugann og margar góðar ábendingar um áhugavert efni og bakhjarli vefsins Sessor fyrir stuðning við staðbundna fjölmiðlun á Húsavík.
Mest lesnu fréttir í janúar 2026
> Leituðu öruggra verkefna fyrir sitt fólk eftir vanhugsaðar aðgerðir gegn skemmtiferðaskipum
> Kristján Örn og Harðarbörn kaupa Gamla Bauk af Norðursiglingu
> Gestir þorrablótsins fengu nýprentaða seðla frá Seðlabanka Tjörnesinga
> Ráðgáta á Húsavík: „Dularfull góðverk góð byrjun á ári”
Mest lesnu viðtöl í janúar 2026
> Inga Björg Brynjúlfsdóttir: 15 ára á leið á Evrópumót
> Vilja gera Húsavík að miðstöð nýsköpunar á landsbyggðunum
> Lampros í sundlauginni: Sagnamaður bak við miðasöluglerið
> „Hlutverk HSÞ að stuðla að fjölbreyttu starfi í íþróttum og félagsstörfum“
> “I want people to be curious about their neighbours”
> „Samfélagið er kennslustofan“?
> „Við erum ólýsanlega stolt af stelpunni okkar“
> „Við vonumst til að fá sem flest úr þessum stóra árgangi til okkar í FSH“



