Kvenfélagskonur á Húsavík komu saman um helgina í tilefni 1. febrúar, sem er dagur kvenfélagskonunnar. Það er þriggja kvenna nefnd sem skipuleggur árlegan kleinugerðardag. Nefndina þetta árið skipuðu þær Emilía Harðardóttir, Helga Kristinsdóttir og Lilja Skarphéðinsdóttir.
„Við seljum kleinur ávallt á laugardegi sem liggur hvað næst sjálfum deginum 1. febrúar, enda fer salan fram í tilefni þess dags. Í ár bar dag kvenfélagskonunnar upp á sunnudegi. Við komum saman, kvenfélagskonur, á laugardagsmorgni í heimahúsi, gerum kleinudeig, breiðum út, snúum upp á og steikjum. Eftir hádegi erum við tilbúnar með ‘nýsteiktar kleinur með kaffinu’ og óskum eftir að þær verði sóttar á uppgefið heimilisfang, en þeir sem þess óska geta fengið þær sendar heim að dyrum,“ segir Helga.
Helga segir að þetta sé gott og skemmtilegt samfélagsverkefni. Kvenfélag Húsavíkur og þær konur sem þar starfa hafa unnið vel fyrir nærsamfélagið og hafa margir notið góðs af.
„Auk þessa dags er vert að nefna önnur verkefni sem Kvenfélag Húsavíkur stendur fyrir: kökubasar að vori, útbúin mæðradagsblóm sem seld eru í tilefni mæðradags í maímánuði, laufabrauð, jólabasar og gerð leiðisgreina í nóvember og desember. Ekki má heldur gleyma þorrablóti kvenfélagsins í íþróttahöllinni okkar, sem færð er í hátíðarbúning í janúar ár hvert,“ segir Helga.
„Einnig viljum við þakka öllum þeim frábæru fyrirtækjum í nærsamfélaginu sem ávallt eru reiðubúin að styrkja þau verkefni sem við stöndum fyrir hverju sinni. Við þekkjum ykkur og þið þekkið okkur. Þið takið ávallt vel á móti okkur þegar við óskum eftir styrkjum vegna verkefna okkar.“




