Verður eini sýslumaður landsins staðsettur á Húsavík?
Frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um sameiningu sýslumannsembætta var samþykkt á Alþingi í gær og verður landið samkvæmt því allt undir einum sýslumanni frá og með næstu áramótum. Svavar Pálsson, sýslumaður Norðurlands eystra og settur sýslumaður á Austurlandi, segir að óvissan sé mikil meðan beðið er nánari útfærslu ráðuneytisins. …
