Alþingi samþykkti síðdegis í dag frumvarp dómsmálaráðherra um að fækka sýslumannsembættum landsins úr níu í eitt. Lögin taka gildi 1. janúar 2027 og hefur ráðherra eitt ár til að undirbúa nýtt embætti með reglugerð, en ekki liggur fyrir hvar aðalskrifstofa þess verður staðsett.
Samþykktin hefur þegar vakið miklar umræður, ekki síst á landsbyggðunum, þar sem áhyggjur eru uppi af aukinni miðstýringu og mögulegum tilfærslum starfa. Ítarleg umfjöllun um málið og stöðu skrifstofu og starfa sýslumannsembættisins á Húsavík birtist hér á vefnum á morgun, en þar er meðal annars rætt við Svavar Pálsson sýslumann, forseta sveitarstjórnar, fulltrúa í sveitarstjórn og þingmenn í kjördæminu.

